Árás Trump „stórfengleg heift“ en endalokin óljós

Don­ald Trump rétt­læt­ir árás á Ír­an sem til­raun til að eyða ógn en mark­mið­in eru óljós og virð­ast breyt­ast eft­ir því hvenær er spurt. Gagn­rýn­end­ur telja óviss­una með­vit­aða svo hægt sé að lýsa yf­ir sigri óháð nið­ur­stöðu. Árás­ir eiga sér stað víð­ar á svæð­inu.

Árás Trump „stórfengleg heift“ en endalokin óljós
Árásir víðar Reykjarmökkur stígur upp frá stað þar sem Ísraelar gerðu loftárás í suðurhluta Beirút í morgun. Ísraelsher gaf út nýjar rýmingarskipunir fyrir tugi staða í Líbanon þann 3. mars, þar á meðal aðvaranir til íbúa í tveimur hverfum í suðurhluta Beirút um að halda sig fjarri nokkrum byggingum vegna yfirvofandi aðgerðar. Mynd: IBRAHIM AMRO / AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann hafi ráðist á Íran til að eyða ógn. Hvernig hann sér fyrir sér að stríðinu muni ljúka er hins vegar óljóst. Eftir að æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í fyrstu árásunum á laugardag hvatti Trump Írani til að rísa upp gegn klerkastjórninni. En Trump sagði fljótlega að stríðið, sem hann hóf ásamt Ísrael, snerist þegar allt kæmi til alls ekki um stjórnarskipti.

Að lokum mætti kannski best draga saman markmið hernaðaraðgerðarinnar sem Trump og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hófu með nafninu sem Pentagon gaf henni: „Stórfengleg heift“.

Trump hefur hótað fjögurra vikna stríði eða lengur gegn þessu 90 milljóna landi, þar sem hundruð hafa verið tilkynnt látin, og varað við enn hrikalegri árásum. Vegna gagnrýni um óljós markmið lögðu Trump og helstu ráðgjafar hans fram fern markmið fyrir stríðið á mánudag–öll af hernaðarlegum toga. Þau fela í sér að eyðileggja …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
2
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu