Sænsk vélmenni til reynslu hjá BMW

Þau eru svart­hvít, 1,65 metrar að hæð, 60 kíló og hafa verið fengin til reynslu hjá bíla­fram­leið­and­anum BMW.

Sænsk vélmenni til reynslu hjá BMW
Vélmenni í Kína Þýski kansl­ar­inn Friedrich Merz fór til Kína í vik­unni, þar sem dans­andi bar­daga­vél­menni tóku á móti honum. Mynd: AFP

Þýski bíla­fram­leið­and­inn BMW til­kynnti í dag að hann hygð­ist taka í notkun tvö mann­gerð vél­menni, sem gædd eru gervi­greind, í verk­smiðju sinni í til­rauna­verk­efni í fyrsta sinn á þessu ári.

Vél­mennin, sem kall­ast AEON og eru þróuð af sænska fyr­ir­tæk­inu Hexagon, eru svart­hvít, 1,65 metrar á hæð, vega 60 kíló og fara um á tveimur hjólum.

Þau geta með­höndlað og fært íhluti sjálf­stætt innan verk­smiðju þar sem rýmið hefur áður verið fullskannað og staf­rænt.

Nokkurra mán­aða til­rauna­tíma­bil hefst í sumar í verk­smiðju í Leipzig, þar sem starfs­menn munu vinna við hlið vél­menn­anna, sem líkj­ast mönnum í útliti.

Vél­mennið „hefur fulla vit­und um umhverfi sitt“ þökk sé 22 skynj­urum og ýmsum gerðum mynda­véla, sagði Arnaud Robert, for­seti Hexagon Robotics.

Robert vildi ekki gefa upp verð vél­menn­anna en sagði að það væri talið í hund­ruðum þús­unda evra, eða tug­millj­ónum króna.

Vél­mennið með gervi­greind er „nógu gáfað til að taka eigin ákvarð­anir“ …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár