Sjálfstæðisflokkur nartar áfram í hæla Samfylkingar

Sam­fylk­ingin er með mest fylgi í borg­inni sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó ekki langt undan. Fylgi beggja dalar á milli mán­aða í borg­ar­vita Maskínu.

Sjálfstæðisflokkur nartar áfram í hæla Samfylkingar

Sam­fylk­ingin mælist með mest fylgi í borg­ar­stjórn Reykja­víkur sam­kvæmt nýjum Borg­ar­vita Maskínu eða 24 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kemur þar rétt á eftir með 22,7 pró­sent en fylgi beggja flokka hefur dalað eilítið frá síð­ustu mæl­ingu í jan­úar.

Í nóv­em­ber mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur í borg­inni hjá Maskínu, en það er eina skiptið síð­ustu sex mán­uði sem Maskína mælir Sjálf­stæð­is­flokk stærri en Sam­fylk­ingu.

Viðreisn kemur næst með 13,5 pró­senta fylgi en flokk­ur­inn hefur mælst á bil­inu 14,9 pró­sent (í sept­em­ber) og niður í 11,5 pró­sent (í nóv­em­ber). Mið­flokk­ur­inn hefur hins vegar verið á hægri en öruggri sigl­ingu upp á við og mælist nú með 11 pró­sent.

Hið nýlega stofn­aða Vinstri, sem er sam­einað fram­boð Vors til vinstri og Vinstri grænna, er með 9,1 pró­sent fylgi. Vor til vinstri var fyrst mælt í könn­unum Maskínu 1. jan­úar en frá og með 25. febr­úar mældi Maskína stuðn­ing við Vinstrið.

Fylgis­tölur aftur í tím­ann eru sam­an­lagt fylgi Vinstri grænna og Vors til vinstri. Stuðn­ingur við sam­einað fram­boð Vinstris er tölu­vert meiri en sam­an­lagt fylgi fylk­ing­anna tveggja var fyrir.

Píratar mæl­ast nú með 5,5 pró­senta fylgi eftir að hafa mælst með 3 pró­sent í síð­asta mán­uði. Þá tekur fylgi Fram­sóknar lítið stökk upp á við – fer úr 4,4 pró­sentum upp í 5,1.

Fylgi Sós­í­alista­flokks­ins og Flokks fólks­ins heldur áfram að dala og er komið niður í 3,7 og 3,4 pró­sent.

Könnunin fór fram 1.–27. febr­úar og voru yfir þús­und manns sem tóku afstöðu. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár