Aðalsteinn hættur hjá Þorgerði og einbeitir sér að guðfræði

Að­al­steinn Leifs­son hef­ur lát­ið af störf­um sem að­stoð­ar­mað­ur ut­an­rík­is­ráð­herra. Í til­kynn­ingu á Face­book seg­ist hann ætla að ein­beita sér að guð­fræði­námi og stefn­ir á embætt­is­próf.

Aðalsteinn hættur hjá Þorgerði og einbeitir sér að guðfræði

Aðalsteinn Leifsson, varaþingmaður Viðreisnar, hefur látið af störfum sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra eftir viðburðaríkt ár í utanríkisráðuneytinu.

Að sögn Aðalsteins er ástæðan persónuleg. Hann hyggst gefa sér aukið svigrúm til guðfræðináms við Háskóla Íslands og stefnir að því að ljúka embættisprófi. Samhliða náminu ætlar hann að sinna ráðgjöf í samningaviðræðum og lausn deilumála og kenna samningatækni og sáttamiðlun.

Í tilkynningu sem hann birtir á Facebook þakkar hann samstarfið við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og segir það hafa verið traustsyfirlýsingu að fá að leiða vinnu við mótun fyrstu formlegu stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum sem formaður samráðshóps þingmanna. Hann muni fylgja þeirri vinnu eftir sem varaþingmaður, að beiðni ráðherra, þrátt fyrir að hverfa úr ráðuneytinu.

Ákvörðunin kemur skömmu eftir að hann beið lægri hlut fyrir Björgu Magnúsdóttur í baráttu um að leiða lista Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Aðalsteinn varð í öðru sæti í prófkjörinu en niðurstaðan var einungis bindandi …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
4
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár