Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur á pari

Stuðn­ing­ur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn mæl­ist nú nær al­veg jafn stuðn­ingi við Við­reisn. Sam­fylk­ing­in er enn lang­stærst en Mið­flokk­ur mæl­ist með rétt und­ir 20 pró­senta fylgi.

Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur á pari
Í stjórn Frá því að Viðreisn var stofnuð árið 2016 hefur flokkurinn tvívegis átt aðild að ríkisstjórn. Nú mælist flokkurinn með 13,5 prósenta fylgi og ríkisstjórnarflokkarnir hafa samanlagt yfir helmingsfylgi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd: Golli

Samfylkingin mælist enn sem áður langstærsti flokkurinn á þingi, með stuðning rétt rúmlega 30 prósent svarenda í nýrri könnun Prósents. Miðflokkurinn kemur þar næst á eftir með tæplega 20 prósenta fylgi. 

Sjálfstæðisflokkur, sem sögulega hefur verið stærsti stjórnmálaflokkur á Íslandi, mælist nú með um það bil jafn mikið fylgi og Viðreisn, sem byrjaði sem klofningur úr Sjálfstæðisflokki árið 2016. Flokkarnir mælast með 13,7 prósent og 13,5 prósent fylgi, en ekki er marktækur munur á fylgi flokkanna. 

Flokkur fólksins mælist með 7,7 prósenta fylgi og er samanlagt fylgi stjórnarflokkanna þriggja því rétt rúmlega 50 prósent. 

Framsóknarflokkur mælist með 5,9 prósent en flokkurinn hefur dansað við fimm prósenta þröskuldinn undanfarin misseri. Nái flokkur ekki yfir 5 prósent atkvæða í kosningum þarf hann að treysta á verulegt fylgi í einhverju kjördæmi til að ná manni inn á þing. 

Píratar og Vinstri græn eru enn fjarri þingsæti, miðað við niðurstöðurnar, og mælast með 3,6 prósent og 3,3 prósent fylgi. Sósíalistar mælast enn neðar, með 2,4 prósent, og fengju miðað við það ekki áframhaldandi fjárstuðning úr ríkissjóði. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár