Myndir: Gjörbreytt Reynisfjara

Landrof vegna mik­illa austanátta hef­ur breytt ásýnd Reyn­is­fjöru en ferða­menn lenda enn í volki.

Myndir: Gjörbreytt Reynisfjara
Hafið hefur teygt sig langt upp í land og nú er ófært inn í Hálsanefshelli þar sem ferðamenn voru gjarnir á að ganga inn í. Mynd: Golli

Síðustu vikur hefur verið greint frá miklu landrofi í Reynisfjöru sem hefur tekið miklum útlitsbreytingum í vetur. Mikið magn af sandi hefur skolað burt og ströndin er nú þéttsetin grjóti. Þá hefur hrunið talsvert úr hlíðum Reynisfjalls niður á ströndina fyrir neðan.

Sjórinn hefur fært sig talsvert lengra inn í land og er kominn alveg upp að stuðlaberginu sem áður var algengt að ferðafólk klifraði í. Þá er engin leið lengur að komast inn í Hálsanefshelli sem er þar fyrir innan. 

Sjórinn, sem er þekktur fyrir sterkar öldur á svæðinu, hefur verið að leita hátt upp í land, jafnvel upp að útsýnispallinum og skiltunum. Útsýnispallurinn er nú víða brotinn en viðvörunarskiltin hafa verið fjarlægð. Í gær var ófært niður í fjöruna.

Hættan fyrir ferðamenn virðist síst hafa minnkað og urðu nokkrir þeirra fyrir volki á meðan ljósmyndari Heimildarinnar var á svæðinu um helgina.

Sigurður Sigurðarson, strandverkfræðingur hjá Vegagerðinni, skýrði …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
5
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár