Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus og starfsmaður Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt, segir hugveitu sína starfa með alþjóðlegu neti hugveitna og stofnana sem Miðflokkurinn tengist nú í auknum mæli.
Ein þeirra er New Direction, hugveita sem tengist ECR, Evrópuflokki íhaldsmanna og umbótasinna, sem Miðflokkurinn er nú í aðildarferli hjá. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur sótt fjölda funda á vegum New Direction og starfsmaður hugveitunnar, Robert Tyler, sat leynifund með honum og fulltrúum frá Repúblikanaflokknum í Gautaborg síðasta sumar.
Hannes segir New Direction greiða ferðakostnað fyrir þátttakendur ráðstefna eins og þeirra sem Sigmundur Davíð hefur sótt. Sigmundur Davíð hefur hins vegar engan slíkan kostnað skráð hjá sér í hagsmunaskráningu þingmanna, þrátt fyrir að siðareglur Alþingis kveði á um það.
Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt (RNH) er hugveita sem Hannes fer fyrir en ásamt honum hafa Ragnar Árnason og Birgir Þór …

















































Athugasemdir (1)