Líf áfram oddviti en Finnur endaði þriðji

Líf Magneu­dóttir verðir áfram odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík. Stefán Pálsson varð í öðru sæti í for­vali flokks­ins en Finnur Ricart Andrason, sem sótt­ist eftir odd­vita­sæti, hafn­aði í þriðja sæti. Met­þátt­taka var í for­val­inu.

Líf áfram oddviti en Finnur endaði þriðji

Líf Magneu­dóttir bar sigur úr býtum í bar­átt­unni um odd­vita­sæti Vinstri grænna í Reykja­vík fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Vinstri grænum í Reykja­vík um nið­ur­stöðu for­vals félags­ins.

Met­þátt­taka var í for­val­inu en alls greiddu 1.093 atkvæði, eða 42 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá. Kosið var um efstu þrjú sæti á sam­eig­in­legum lista Vinstri grænna og Vors til vinstri fyrir kosn­ing­arnar í vor.

Líf hlaut 496 atkvæði í 1. sæti og tryggði sér þannig efsta sætið. Finnur Ricart Andrason, sem einnig sótt­ist eftir odd­vita­sæt­inu, hafn­aði í þriðja sæti. Hann hlaut 644 atkvæði í 1.–3. sæti.

Stefán Pálsson, sem sótt­ist eftir öðru sæti, náði því mark­miði og varð í öðru sæti með 549 atkvæði í 1.–2. sæti.

Þrjú atkvæði voru auð og eitt ógilt.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að skipuð verði sam­eig­in­leg kjör­nefnd Vinstri grænna í Reykja­vík og Vors til vinstri sem muni móta til­lögu að sam­eig­in­legum fram­boðs­lista félag­anna til borg­ar­stjórnar í vor.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár