Þjóðin klofin gagnvart Bandaríkjunum

Fleiri Ís­lend­ing­ar líta nú á Banda­rík­in sem and­stæð­ing en banda­mann. Kyn­in klofna í af­stöðu til Banda­ríkj­anna. Tekju­hærri hafa minni áhyggj­ur og kjós­end­ur Mið­flokks­ins minnst­ar.

Þjóðin klofin gagnvart Bandaríkjunum
Donald Trump Karlmenn á Íslandi hafa minni áhyggjur af honum heldur en konur. Mynd: AFP

Fjórir af hverjum tíu Íslendingum líta á Bandaríkin sem andstæðing, samkvæmt nýrri könnun Maskínu.

Færri, eða 32%, telja að Bandaríkin séu bandamaður Íslands og fjórðungur svarenda kveðst ekki vita.

Þrátt fyrir þetta er Ísland með varnarsamning við Bandaríkin og í varnarbandalagi með landinu.

Maskína spurði: Eins og staðan er í dag, myndir þú lýsa Bandaríkjunum sem bandamanni eða sem andstæðingi?

Svör Íslendinga eru nokkuð frábrugðin svörum Dana í sams konar könnun nýlega.  Þá sögðust 60% Dana líta á Bandaríkin sem andstæðing, en aðeins 17% sem bandamann.

Mikill munur er á milli hópa í íslensku könnuninni. Þannig líta 49% kvenna á Bandaríkin sem andstæðing, en aðeins 32% karla.

Þau sem hafa hærri tekjur eru sömuleiðis með minni áhyggjur af Bandaríkjunum en tekjulægri. 37% þeirra sem hafa tekjur yfir 1,2 milljón króna sjá Bandaríkin sem andstæðing, en 48% þeirra sem hafa frá 550 þúsund krónum til 800 þúsund króna í heimilistekjur.

Aðeins 10,6% kjósenda Miðflokksins líta á Bandaríkin sem andstæðing, en 57% kjósenda Samfylkingarinnar, svo dæmi séu tekin.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Þaðergamanaðgetaðskráðniðuehugsanirsínáráblaðeinsoggerteridágennunáernotastviðtölvurogsvoleiðisfreakrennáðhandskrifajaalterbreytingunuumháðogáframliðurtíminn
    0
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Þegar ég byrjaði fyrst að lesa þetta (þýða, þar sem ég er að læra íslensku) misskildi ég kjarnann sem að Bandaríkin ættu að fá nýtt nafn þar sem við erum augljóslega núna skipt ríki. Nú sé ég þýðingarvilluna mína, en ég held samt að restin af heiminum ætti að íhuga að endurnefna okkur í eitthvað eins og „Klofaðaríkin“. Þar sem kakkalakki forseti okkar er að endurnefna eins og hann vill, restin af heiminum ætti að gera það sama við okkur.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    USA er ógn við allt sem er gott og fallegt og gefur lífinu eitthvert gildi, en því miður ekki eina ógnin. Þá á ég að sjálfsögðu við stjórnvöldin en ekki þær miljónir af indælu fólki sem líka finnst þar.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
GreiningBandaríki Trumps

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Borgþór Arngrímsson
2
Pistill

Borgþór Arngrímsson

Á Kast­rup eykst um­ferð­in en það ger­ir meng­un­in líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár