„Við erum að stíga risastórt skref í áttina að endurgjaldslausum leikskóla“

Ekkert dval­ar­gjald verður fyrir 36 stundir á viku í leik­skólum borg­ar­innar, gangi til­lögur stýri­hóps um leik­skóla­mál í borg­inni eftir. Hámarks­dval­ar­tími barna verður ekki styttur en teknir verða upp hvatar til að for­eldrar sæki börn fyrr á föstu­dögum.

„Við erum að stíga risastórt skref í áttina að endurgjaldslausum leikskóla“

Ekkert dval­ar­gjald verður rukkað fram að 36 stundum á hverri viku í leik­skólum borg­ar­innar og hvatar verða settir til að stytta dval­ar­tíma barna á föstu­dögum. Vistun umfram það mun hækka í þrepum fyrir hverjar þrjá­tíu mín­útur sem bætt er við. Þetta er meðal þess sem stýri­hópur um leik­skóla­mál í Reykja­vík­ur­borg leggur til.

Samkvæmt borg­inni getur sparn­aður numið allt að 168 þús­und krónum á ári fyrir fjöl­skyldur sem nýta sér úrræðið. Sem dæmi mun gjald fyrir 38 tíma vistun verða 7.000 krónur á mán­uði auk fæð­is­gjalds. Borgin segir gjaldið mun lægra en í fyrri til­lögum og að tekið hafi verið til­lit til athuga­semda í sam­ráði.

„Við erum ekk­ert að skerða leik­skóla­dag­inn,“ sagði Helga Þórð­ar­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins og með­limur stýri­hóps­ins, og bætti við að „það er bara breytt gjald­skrá“. Hámarks­dval­ar­tími helst óbreyttur, 42,5 klukku­stundir á viku, og ekki er gert ráð fyrir fækkun leik­skóla­plássa.

Skoðuðu leiðir hinna sveitarfélaganna

Borgin segir breyt­ing­arnar ætl­aðar til að draga úr fáliðun, auka fyr­ir­sjá­an­leika og tryggja stöðuga mönnun yfir árið. Sam­keppni um starfs­fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og stytt­ing dval­ar­tíma ann­ars staðar hafi skapað áskor­anir í Reykja­vík.

„Mark­miðið okkar er að ná umbótum í leik­skólum,“ sagði Líf Magneu­dóttir, for­maður stýri­hóps um leik­skóla­leið­ina og odd­viti Vinstri grænna, þegar til­lög­urnar voru kynntar. „Við erum að stíga risa­stórt skref í átt­ina að end­ur­gjalds­lausum leik­skóla.“

Líf sagði að leiðir ann­arra sveit­ar­fé­laga hefðu verið skoð­aðar og að mikið sam­ráð hefði verið haft við starfs­fólk, stjórn­endur og for­eldra í gegnum for­eldra­fé­lög skól­anna. Helga sagði að „langt og strangt sam­ráðs­ferli“ hefði farið fram og að til­lög­urnar nú væru ólíkar þeim sem lagðar voru fram í sam­ráðs­gátt í byrjun árs. Fjöldi umsagna hefði borist sem hefðu haft áhrif á vinnu stýri­hóps­ins.

Mátu sérstaklega áhrif á konur

Sérstakt jafn­rétt­is­mat var fram­kvæmt á til­lög­unum og segir Líf það hafa verið gert til að meta hvaða áhrif breyt­ing­arnar hefðu á konur. „Við viljum alls ekki að breyt­ingar sem við ráðumst í komi niður á konum, að það skekki jafn­rétti kynj­anna,“ sagði Líf. Horft hafi verið til þess að taka til­lit til stöðu ein­stæðra og ein­stakra for­eldra og fólks með lítið bak­land.

Samkvæmt til­kynn­ingu borg­ar­innar verða nýir afslátt­ar­flokkar teknir upp fyrir ein­stæða for­eldra og tekju­lágar fjöl­skyldur sem þurfa lengri vistun. Samkvæmt jafn­rétt­is­mati borg­ar­innar leiðir ný gjald­skrá til veru­legra lækk­ana fyrir stóran hóp for­eldra. Hækk­an­irnar snerta einkum lengstu vist­un­ar­tím­ana og tekju­hærri for­eldra.

„Þetta eru ekki einu aðgerð­irnar sem við þurfum að ráð­ast í,“ sagði Líf um fram­haldið. „Þetta er bara fyrsti áfangi. Við þurfum auð­vitað að gera meira, og það kemur þá á næsta kjör­tíma­bili.“

Systkini sameinuð á leikskólum

Til­lög­urnar gera ráð fyrir að systk­ina­sam­ein­ing verði tryggð með ákveðnum skil­yrðum í „stóru inn­rit­un­inni“ í mars. Skil­yrðin fela meðal ann­ars í sér að við­kom­andi leik­skóli sé fyrsta val, að eldra systk­ini verði áfram í að minnsta kosti sex mán­uði og að börnin séu með sama fjöl­skyldu­númer í þjóð­skrá.

„Við bíðum eftir að fá form­lega laga­heim­ild,“ sagði Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar sem átti sæti í hópnum, og benti á að fyrir þing­inu lægi laga­frum­varp sem heim­il­aði systkina­for­gang.

Einnig verða stofnuð ný stöðu­gildi umsjón­ar­fólks leik­skóla­hús­næðis sem sinna minni­háttar við­haldi og dag­legum rekstri hús­næðis. Með því er ætlað að létta á stjórn­endum.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár