68 börnum synjað um vernd í fyrra

Flest þeirra barna sem var synjað um alþjóð­lega vernd í fyrra voru frá 0 til 13 ára og stærsti hluti þeirra frá Venes­ú­ela. Heim­ferða- og fylgda­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdi 48 börnum úr landi í fyrra.

68 börnum synjað um vernd í fyrra

52 börnum á aldr­inum 0 til 13 ára var synjað um alþjóð­lega vernd í fyrra. 16 börnum á aldr­inum 14 til 17 ára var einnig synjað, alls 68 börnum.

Þetta kemur fram í svari Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Rósu Guð­bjarts­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Alþingi.

Í töl­fræð­ina vantar tölur fyrir des­em­ber­mánuð en þær lágu ekki fyrir þegar Útlend­inga­stofnun veitti dóms­mála­ráðu­neyt­inu upp­lýs­ing­arnar.

Flest barn­anna voru frá Venes­ú­ela, eða 22 tals­ins. Tólf voru frá Írak, sjö frá Nígeríu, fimm frá Jórdaníu og fimm frá Kólumbíu.

Þá spurði Rósa hversu oft rík­is­lög­reglu­stjóri hefði haft aðkomu að brott­vísun barn­anna. „Samkvæmt upp­lýs­ingum frá heim­ferða- og fylgda­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdi emb­ættið 48 börnum úr landi frá 1. jan­úar til 15. des­em­ber 2025,“ segir í svar­inu.

Loks kemur fram að 108 börn hafi farið af landi brott í sjálf­viljugri heim­för í sam­vinnu við Útlend­inga­stofnun á árinu 2025. 80 þeirra voru frá Venes­ú­ela, …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár