68 börnum synjað um vernd í fyrra

Flest þeirra barna sem var synj­að um al­þjóð­lega vernd í fyrra voru frá 0 til 13 ára og stærsti hluti þeirra frá Venesúela. Heim­ferða- og fylgda­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdi 48 börn­um úr landi í fyrra.

68 börnum synjað um vernd í fyrra

52 börnum á aldrinum 0 til 13 ára var synjað um alþjóðlega vernd í fyrra. 16 börnum á aldrinum 14 til 17 ára var einnig synjað, alls 68 börnum.

Þetta kemur fram í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.

Í tölfræðina vantar tölur fyrir desembermánuð en þær lágu ekki fyrir þegar Útlendingastofnun veitti dómsmálaráðuneytinu upplýsingarnar.

Flest barnanna voru frá Venesúela, eða 22 talsins. Tólf voru frá Írak, sjö frá Nígeríu, fimm frá Jórdaníu og fimm frá Kólumbíu.

Þá spurði Rósa hversu oft ríkislögreglustjóri hefði haft aðkomu að brottvísun barnanna. „Samkvæmt upplýsingum frá heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra fylgdi embættið 48 börnum úr landi frá 1. janúar til 15. desember 2025,“ segir í svarinu.

Loks kemur fram að 108 börn hafi farið af landi brott í sjálfviljugri heimför í samvinnu við Útlendingastofnun á árinu 2025. 80 þeirra voru frá Venesúela, tólf frá Nígeríu og sex …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
2
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu