Fjórum leikskólum lokað en borgin segir plássum samt fjölga

Þrátt fyrir tíma­bundna lokun fjög­urra leik­skóla vegna fram­kvæmda áætlar Reykja­vík­ur­borg að 277 ný pláss bæt­ist við á árinu, 169 falli út og nettó­fjölgun verði 119 pláss sem dreif­ist smám saman yfir árið. Plássin gætu þó staðið auð á meðan reynt er að manna leik­skól­ana.

Fjórum leikskólum lokað en borgin segir plássum samt fjölga
Brák­ar­borg Hluti af við­bót­ar­leik­skóla­plássum borg­ar­innar er á Brák­ar­borg. Borgin segir að börn muni fær­ast í skól­ann á ný í apríl næst­kom­andi en verk­lokum hefur ítrekað verið frestað. Skólanum var lokað sum­arið 2024. Mynd: Golli

Ekki verður inn­ritað í leik­skól­ana Hagaborg, Sæborg, Borg og Vina­gerði á kom­andi skóla­ári. Stafar það af viða­miklum end­ur­bótum á hús­næði. Þetta þýðir að pláss sem ann­ars myndu losna þar verða ekki nýtt í haust og þrýst­ingur fær­ist yfir á aðra leik­skóla borg­ar­innar. Borgin segir að leik­skóla­plássum muni samt fjölga heilt yfir á árinu.

Samtals eru það 169 pláss sem detta út úr kerf­inu, tíma­bundið, að því er segir í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg. Þar segir að á móti þeim plássum muni 277 ný pláss bæt­ast við, sem ekki var inn­ritað í á síð­asta ári, vegna við­bygg­inga og fram­kvæmda­loka við aðra leik­skóla. Þá er gert ráð fyrir heilum nýjum leik­skóla í Elliða­ár­dal í þeim tölum.

Raun­veru­leg aukn­ing verður því 119 pláss þegar allt er lagt saman en hún dreif­ist yfir árið og hangir á því að bygg­ing­ar­á­form og verk­á­ætl­anir stand­ist.

Stóra úthlutunin hefst í mars

Úthlutun leik­skóla­plássa …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár