Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum

Al­þjóða­sam­tök sem fjár­mögn­uð eru af Char­les Koch styrkja út­breiðslu frjáls­hyggju með­al ungs fólks á Ís­landi. Breki Atla­son, al­þjóða­full­trúi Mið­flokks­ins, fer fyr­ir sam­tök­un­um hér­lend­is og sæk­ist eft­ir kjöri í borg­ar­stjórn. Hug­veita sem Hann­es Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stýr­ir teng­ist sama vef sam­tak­anna.

Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum
Á Atreju ráðstefnunni í Róm Breki Atlason, fyrir miðju, sótti ráðstefnu íhaldsmanna í Róm í fyrra. Til hægri er Hannes Hólmsteinn Gissurarson, en báðir fara þeir fyrir félögum sem tengjast Atlas Network. Með þeim, frá vinstri, eru Björn Ingi Hrafnsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Einar Jóhannes Guðnason úr Miðflokknum.

Bandarísku samtökin Students for Liberty, sem fjármögnuð eru í gegnum net félaga sem bandaríski milljarðamæringurinn Charles Koch hefur styrkt, boða hugmyndafræði frjálshyggju á Íslandi. Hugveita sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, er aðili að sama neti félaga. Áhrifafólk í Miðflokknum verður sífellt meira áberandi í starfi Students for Liberty, sem hingað til hefur helst verið tengt fólki úr Sjálfstæðisflokknum.

Alþjóðafulltrúi Miðflokksins, Breki Atlason, leiðir Students for Liberty á Íslandi, og sækist nú eftir sæti á lista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar. Hann hefur staðið fyrir ráðstefnum með áhrifafólki af hægri væng stjórnmálanna, bæði innlendu og erlendis frá, sem ætla má að fái fjárstuðning frá alþjóðaskrifstofu Students for Liberty miðað við opinbera stefnu samtakanna um að styðja þá viðburði sem tugir þúsunda fulltrúa þeirra um heim allan standa fyrir. 

Breki svaraði ekki spurningum Heimildarinnar um málið þegar eftir því var leitað.

Milljarðamæringurinn Charles Koch, sem ásamt bróður sínum, David, stofnaði olíurisann Koch Industries, …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Því miður ekkert sem kemur á óvart hér. Við getum líka átt von á miklum þrýstingi eða jafnvel hótunum frá Bandaríkja forseta þegar kemur næst að þingkosningum. Það sækjast sér um líkir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár