Telja mörg þúsund hafa verið drepna í mótmælum í Íran

Gögn mann­rétt­inda­sam­taka og rann­sókn breska blaðs­ins Guardian benda til þess að tugir þús­unda gætu hafa verið drepnir í Íran. Þúsundir dauðs­falla hafa verið stað­fest og tug­þús­undir til við­bótar eru sagðar óskráðar.

Telja mörg þúsund hafa verið drepna í mótmælum í Íran
Mótmælt Víða hefur fólk komið saman til stuðn­ings mót­mæl­enda í Íran. Mynd: AFP

Tug­þús­undir manna gætu hafa fallið þegar írönsk stjórn­völd kæfðu niður mót­mæli sem brut­ust út í land­inu í lok des­em­ber, sam­kvæmt rann­sóknum alþjóð­legra fjöl­miðla og mann­rétt­inda­sam­taka. Ný rann­sókn The Guardian og tölur frá mann­rétt­inda­sam­tökum benda til þess að raun­veru­legur fjöldi lát­inna sé marg­falt hærri en stjórn­völd í Teheran við­ur­kenna.

Guardian greindi í morgun frá því að vitn­is­burðir lækna, rétt­ar­lækna og starfs­fólks á sjúkra­húsum og greftr­un­ar­stöðum bendi til þess að allt að 30.000 manns kunni að hafa látið lífið. Fjöl­mið­ill­inn hefur rætt við yfir 80 heil­brigð­is­starfs­menn sem lýsa kerf­is­bundnum aftökum, hvarfi lík­ams­leifa og fjölda­greftr­unum sem ætlað hafi verið að fela umfang dauðs­falla.

Yfir 6.000 dauðsföll staðfest – 17.000 til rannsóknar

Samkvæmt Human Rights Activists News Agency (HRANA), mann­rétt­inda­sam­tökum með aðsetur í Banda­ríkj­unum, hefur nú verið stað­fest að 6.126 manns hafi látið lífið í mót­mæl­unum. Þar af voru 5.777 mót­mæl­endur, 86 börn, 214 liðs­menn örygg­is­sveita og 49 óbreyttir borg­arar, …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár