Pétur nýr leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavík

Pétur Mart­eins­son vann fyrsta sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík með 3.063 atkvæði.

Pétur nýr leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavík

Pétur Hafliði Mart­eins­son er nýr leið­togi Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­inni. Hann sigr­aði Heiðu Björgu Hilm­is­dóttur borg­ar­stjóra í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar sem fór fram í dag. 

Heiða hafn­aði í öðru sæti en hún fékk 1668 atkvæði í fyrsta og annað sæti. 

Pétur og Heiða voru þau einu sem buðu sig fram til að leiða list­ann. Heiða var önnur á lista flokks­ins fyrir síð­a­ustu kosn­ingar en steig upp í odd­vita­sætið þegar Dagur B. Egg­erts­son tók sæti á þingi. Pétur hefur aldri boðið sig fram fyrir Sam­fylk­ing­una áður og hefur ekki verið virkur innan flokks­ins fyrir en nú. 

Mikil end­ur­nýjun er á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kosn­ing­arnar en aðeins tveir sitj­andi full­trúar flokks­ins í borg­ar­stjórn gáfu kost á sér. 

Steinunn Gyðu og Guð­jóns­dóttir hafn­aði í þriðja sæti og Skúli Helgason borg­ar­full­trúi í því fjórða. Stein Olav Romslo hafn­aði í því fimmta og Bjarn­veig Birta Bjarna­dóttir í því sjötta. Þau voru til­greindir full­trúar ungs fólks í próf­kjör­inu. 

Fram­bjóð­endur röð­uð­ust í sex efstu sætin með eft­ir­far­andi hætti:

1. sæti Pétur H. Mart­eins­son með 3.063 atkvæði í 1. sæti.

2. sæti Heiða Björg Hilm­is­dóttir með 1.668 atkvæði í 1.- 2. sæti.

3. sæti Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir með 1.961 atkvæði í 1. - 3. sæti.

4. sæti Skúli Helgason með 1.933 atkvæði í 1. - 4. sæti.

5. sæti Stein Olav Romslo með 2.139 atkvæði í 1. - 5. sæti.

6. sæti Bjarn­veig Birta Bjarna­dóttir með 2.256 atkvæði í 1.- 6. sæti.

Á kjör­skrá voru 6.955 og atkvæði greiddu 4.849. Kjörsókn var 69,7 pró­sent. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár