Örtröð í Samfylkinguna: „Það hrönnuðust inn skráningar“

Nýskrán­ingar í Sam­fylk­ing­una voru svo margar í gær að skrán­ing­ar­kerfið stífl­að­ist undan álagi. Síðasta tæki­færi var í gær til að skrá sig í flokk­inn fyrir próf­kjör sem fram fer á morgun.

Örtröð í Samfylkinguna: „Það hrönnuðust inn skráningar“
Slagur Pétur Hafliði Mart­eins­son og Heiða Björg Hilm­is­dóttir takast á um odd­vita­sætið á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar vors­ins. Leiða má að því líkur að fjöldi nýskrán­inga í flokk­inn teng­ist próf­kjör­inu sem fram fer á morgun.

Tals­verður fjöldi nýskrán­inga hefur verið í Sam­fylk­ing­una síð­ustu daga í aðdrag­anda próf­kjörs flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Síðasta tæki­færi til að skrá sig í flokk­inn og fá atkvæða­rétt í próf­kjör­inu var á mið­nætti.

Svo mikil eft­ir­spurn var eftir því að kom­ast á kjör­skrá að kerfið bogn­aði undan álagi, en brotn­aði þó ekki, að því er Rakel Páls­dóttir, fram­kvæmda­stjóri flokks­ins, segir.

„Það mynd­uð­ust stíflur í því. Það gekk allt miklu hægar og fraus hjá sumum en það hrundi ekki,“ segir hún. „Það hrönn­uð­ust inn skrán­ingar engu að síður.“

Rakel seg­ist ekki til­búin að gefa upp hversu margir skráðu sig í flokk­inn í aðdrag­anda próf­kjörs­ins á morgun og vís­aði þess í stað á kjör­stjórn flokks­ins í Reykja­vík. „Ég veit það,“ sagði hún um hversu margir hefðu bæst við, „en það er ekki búið að taka afstöðu til þess hvort það verði birtar ein­hverjar tölur.“

Skrán­ing­arnar í flokk­inn …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár