Aðalsteinn vinsælastur Viðreisnarfólks en flestir óákveðnir

Aðal­steinn Leifsson, vara­þing­maður og fram­bjóð­andi til for­ystu Við­reisnar í borg­inni, nýtur mests stuðn­ings til að leiða list­ann, sam­kvæmt könnun sem hann lét Maskínu gera. Meiri­hluti aðspurðra seg­ist þó ekki vita hver væri best fall­inn til að leiða list­ann.

Aðalsteinn vinsælastur Viðreisnarfólks en flestir óákveðnir

Aðal­steinn Leifsson nýtur mests stuðn­ings þeirra Reyk­vík­inga sem tóku afstöðu í könnun Maskínu um hver sé best til þess fall­inn að leiða lista Við­reisnar í Reykja­vík í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Samkvæmt nið­ur­stöðum telja 52 pró­sent Aðal­stein bestan kost, en 35,9 pró­sent nefna Björgu Magn­ús­dóttur og 12,1 pró­sent Róbert Ragn­ars­son.

Könnunin var gerð af Maskínu fyrir Aðal­stein sjálfan, sem er einn fram­bjóð­enda í odd­vita­vali Við­reisnar, og sendi hann fjöl­miðlum nið­ur­stöð­urnar. Í skýrslu Maskínu er ekki greint sér­stak­lega eftir því hverjir eru lík­legir til að kjósa Viðreisn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, heldur ein­ungis meðal almennra íbúa Reykja­víkur sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar. 

BaráttaBjörg Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður borg­ar­stjóra, er næst vin­sælust Við­reisn­ar­fram­bjóð­end­anna, sam­kvæmt könn­un­inni. Hún og Aðal­steinn virð­ast helst vera í bar­átt­unni um odd­vita­sætið.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 9. til 14. jan­úar 2026 á meðal íbúa Reykja­víkur, 18 ára og eldri. Alls svör­uðu 748 manns, en aðeins 260 tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar sjálfrar. Meiri­hluti svar­enda, eða 56,6 pró­sent, sagð­ist ekki vita hver væri best fall­inn til að leiða list­ann og 8,7 pró­sent vildu ekki svara.

Í skýrsl­unni kemur fram að gögn hafi verið vegin eftir kyni, aldri og menntun til sam­ræmis við tölur Hag­stof­unnar.

Samkvæmt sund­ur­liðun eftir búsetu er stuðn­ingur við Aðal­stein mestur í Hlíða-, Laug­ar­dals-, Háa­leitis- og Bústaða­hverfum, þar sem 54,3 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu nefna hann, en minnstur í Miðborg og Vesturbæ, þar sem hlut­fallið er 48,6 pró­sent. Björg fær hlut­falls­lega mestan stuðn­ing í Miðborg og Vesturbæ, eða 39,2 pró­sent.

Könnunin nær ein­göngu til þeirra þriggja fram­bjóð­enda sem höfðu lýst yfir fram­boði þegar gagna var aflað. Signý Sig­urð­ar­dóttir til­kynnti um fram­boð sitt í odd­vita­kjöri Við­reisnar 16. jan­úar, tveimur dögum eftir að gagna­söfnun lauk, og er því ekki hluti af könn­un­inni.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár