Miðflokkurinn hækkar flugið – mælist í 22 prósentum

Mið­flokk­ur­inn nálg­ast fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem enn er þó stærsti flokkur lands­ins. Viðreisn hefur tekið fram úr Sjálf­stæð­is­flokki og Flokkur fólks­ins mælist utan þings.

Miðflokkurinn hækkar flugið – mælist í 22 prósentum

Mið­flokk­ur­inn mælist með yfir 22,2 pró­senta fylgi og flug Sam­fylk­ing­ar­innar lækkar, í nýrri könnun Maskínu. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 13,5 pró­sent og hefur flokk­ur­inn aðeins einu sinni mælst lægri í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Það var í sept­em­ber árið 2024, þegar hann mæld­ist með 13,4 pró­sent.

Greint var frá nið­ur­stöð­unum í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar. Þar kom fram að Viðreisn mæld­ist með 14,1 pró­sent fylgi og mælist því stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Sam­fylk­ing mælist með 27 pró­sent en Flokkur fólks­ins með 4,3 pró­sent.

Það þýðir að flokk­ur­inn næði ekki yfir 5 pró­senta markið sem tryggði honum jöfn­un­ar­sæti á þingi og þyrfti því að treysta á að ná inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni, til að þurrkast ekki út.

Fram­sókn­ar­flokkur mælist með 7,1 pró­sent, sem er litlu meira en flokk­ur­inn hefur gert í síð­ustu könn­unum. Sós­í­alistar, Píratar og Vinstri græn mæl­ast enn utan þings, en Sós­í­alistar og Píratar mæl­ast bæði með 4,1 pró­senta fylgi og Vinstri græn með 3,7 pró­sent. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár