Vélfag til rannsóknar og stjórnarformaðurinn handtekinn

Hér­aðs­sak­sókn­ari réðst í hús­leit hjá Vélfagi í morgun og hand­tók stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tæk­is­ins. Grunur leikur á að Vélfag hafi brotið gegn þving­un­ar­að­gerðum sem fyr­ir­tækið sætir vegna tengsla sinna við Rússland.

Vélfag til rannsóknar og stjórnarformaðurinn handtekinn

Húsleit og hand­tökur áttu sér stað í morgun í tengslum við rann­sókn yfir­valda á starf­semi Vélfags. Félagið hefur sætt þving­un­ar­að­gerðum vegna við­skipta­þving­ana sem bein­ast gegn Rúss­landi, í tengslum við inn­rás þeirra í Úkraínu. 

„Við erum að hefja rann­sókn á mál­efnum Vélfags, í tengslum við það eru þessar aðgerðir,” segir Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari í sam­tali við Heim­ild­ina. Embættið sem hann fer fyrir er með rann­sókn máls­ins. Ólafur Þór sagð­ist ekki geta veitt frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu þar sem aðgerð­irnar væru yfir­stand­andi. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er til rann­sóknar hvort Vélfag hafi brotið gegn þving­un­ar­að­gerðum sem fyr­ir­tækið sætir. Alfreð Tulinius, stjórn­ar­for­maður Vélfag, var hand­tek­inn þegar aðgerð­irnar fóru af stað í morgun. Þær standa enn yfir. RÚV greindi frá því í morgun en Heim­ildin hefur upp­lýs­ingar um að svo hafi verið.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár