„Við vitum ekkert hvað gerist næst”

Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, tárað­ist á flug­vell­inum í Nuuk þegar lands­menn fögn­uðu henni eftir erfið fund­ar­höld til að bjarga full­veldi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þjóð­ar­innar.

„Við vitum ekkert hvað gerist næst”
Vivian kemur heim Utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, Vivian Motzfeldt, kemur heim eftir erf­iða fundi. Mynd: Golli

Ég ákvað bara í morgun að koma með börnin hingað,“ segir fylgd­ar­kona leik­skóla­barna sem eru fyrst á flug­völl­inn í Nuuk til að bíða komu Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra græn­lensku land­stjórn­ar­innar, ásamt fjölda alþjóð­legra blaða­manna. Börnin bíða spennt í umferð­ar­vestum og sum með fána meðan blaða­menn frá öllum heims­hornum stilla upp upp­töku­vélum og fylgj­ast með komu flug­vél­ar­innar frá Kaup­manna­höfn. Smám saman tín­ist inn fleira og fleira fólk, allt þar til það er orðið stappað á flug­vell­inum. Blaða­menn og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar eru á staðnum.

Líkt og kunn­ugt voru Motzfeldt og Lars Lykke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, full­trúar Græn­lands í síð­ustu viku á fundi í Washington ásamt vara­for­seta Banda­ríkj­anna, JD Vance og utan­rík­is­ráð­herr­anum Marco Rubio, þar sem rætt var um Grænland vegna ásælni banda­rískra yfir­valda.

En nú er Vivian að koma heim með dönsku vél­inni, frá Banda­ríkj­unum og Brussel, líka búin að funda með varn­ar­mála­ráð­herrum Norð­ur­land­anna og fram­kvæmda­stjóra Atlands­hafs­banda­lags­ins. And­rúms­loftið er nú þrungið þegar hún er við það að stíga inn í komusal­inn.

Van­máttur ein­kennir fámennt sam­fé­lag í kast­ljósi alþjóð­legrar umræðu um fram­tíð lands­ins, óvissan er orðin dag­legt brauð, sem er bæði óvænt og reynir á almenn­ing. Því virð­ist fólki umhugað um að tjá þakk­læti sitt.

„Ég er hér til að bjóða Vivian Motzfeldt vel­komna,“ segir Helene Heime sem er alin upp á norður Græn­landi, græn­lensk en með danskan rík­is­borg­ara­rétt. Hún bíður á flug­vell­inum ásamt tveimur vin­konum sínum. Hún seg­ist vera áhyggju­full, líkt og svo margir nú.

Vivian kemur heimGræn­lenski utan­rík­is­ráð­herr­ann tárað­ist við kom­una.Auður Jóns­dóttir

„Ég kom hingað til að sýna utan­rík­is­ráð­herra okkar að við erum hér til staðar. Það er allt svo und­ar­legt sem er nú að ger­ast í kringum Grænland,” segir brosmild kona, Najak Halmen – ef nafnið er rétt stafað, hávað­inn á flug­vell­inum truflar upp­tök­una. Hún tekur fram að þau hafi aldrei upp­lifað eins mikla athygli og nú. „Við vitum ekk­ert hvað ger­ist næst en hún er að vinna gott starf.”

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár