„Vakna á hverjum morgni við nýjar hótanir“

Banda­ríkin vilja enn „sigra“ Grænland, að sögn Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, eftir fund hans og græn­lenska utan­rík­is­ráð­herr­ans með Banda­ríkja­mönnum.

„Vakna á hverjum morgni við nýjar hótanir“
Utan­rík­is­ráð­herrar funda Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, og Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, lýsa erf­iðri stöðu eftir fund með Banda­ríkja­stjórn. Mynd: AFP

„Það er ekki auð­velt að hugsa í skap­andi lausnum þegar maður vaknar á hverjum morgni við nýjar hót­anir,“ sagði Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, eftir fund hans og græn­lenska utan­rík­is­ráð­herr­ans, Vivian Motzfeldt, með banda­rískum starfs­bróður þeirra og vara­for­set­anum JD Vance. 

Svo virð­ist sem afstaða Banda­ríkj­anna um að taka yfir Grænland hafi ekki breyst á fund­inum og var nið­ur­staðan að „sjón­ar­mið okkar eru enn ólík,“ eins og Lars Løkke lýsti því.

Danir til­kynntu í dag um að her­æf­ingar hæfust á Græn­landi þegar í stað og kom fram að Norðmenn, Svíar og fleiri tækju þátt. Það virð­ist ekki hafa breytt stöð­unni og eru enn mis­mun­andi sjón­ar­mið, að sögn Lars Løkke.

„Trump hefur skýra ósk um að sigra Grænland,“ sagði danski utan­rík­is­ráð­herr­ann og tók fram að það væri ekki í hag kon­ungs­dæm­is­ins Dan­merkur.

„Það er ekki auð­velt að hugsa í skap­andi lausnum þegar maður vaknar á hverjum morgni við nýjar hót­anir,“ sagði hann.

„Við höfum sýnt hvar okkar mörk liggja,“ sagði Vivian Motzfeldt. Hún sagð­ist bera í brjósti „von um sam­eig­in­legan skiln­ing“ og eðli­leg sam­skipti.

Vara­for­set­inn og utan­rík­is­ráð­herr­annJD Vance og Marco Rubio fund­uðu fyrir hönd Banda­ríkja­stjórnar og miðl­uðu því að ekk­ert hefði breyst í afstöðu þeirra um að taka Grænland.

„Þetta er auð­vitað mjög til­finn­inga­ríkt fyrir okkur öll,“ sagði Lars Løkke. „Við viljum vinna nánar með Banda­ríkj­unum, en það verður að byggja á virð­ingu.“

Sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna vör­uðu við því í dag að Trump ætl­aði sér „nýlendu­drottnun“ yfir Græn­landi.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Júlíus Hjálmarsson skrifaði
    Danir og Grænlendingar eiga að fara í massíva auglýsingaherferð í USA og spyrja hvort þjóðin sé sammála Trump um að yfirtaka Grænland.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár