„Glæsileg norðurljós“ viðbúin

Kröftugt kóronu­gos í sól­inni stefnir hratt á jörð­ina, með líkum á lit­ríkum norð­ur­ljósum og áhrifum á GPS-kerfi.

Norðurljós
Norð­ur­ljós Skýjafar er víð­ast hvar ágætt til norð­ur­ljósa­á­horfs. Mynd: Shutterstock

Sævar Helgi Bragason, rit­höf­undur og jarð­fræð­ingur, segir stefna í „lit­rík og glæsi­leg norð­ur­ljós“ í nótt eða annað kvöld, eftir að sól­blossi olli kröft­ugu kóronu­gosi sem stefnir hratt á jörð­ina. Líkur benda til þess að skýið skelli á jörð­inni í kringum 11:30 í fyrra­málið, með nokk­urra klukku­stunda skekkju­mörkum.

Uppfært: Sævar Helgi segir gosið skollið á jörð­inni löngu á undan áætlun.

„Á sama tíma verður Jörðin fyrir áhrifum frá hrað­fleygum sól­vindi úr kór­ónu­geil. Sömu aðstæður og voru laug­ar­dag­inn 10. jan­úar,“ segir Sævar Helgi á Facebook-síðu sinni. 

„Aðal­á­hrif geisl­un­ar­storma af þessu tagi eru á flug­ferðir, gervi­tungl og fjar­skipti. Þannig verða flug­far­þegar fyrir meiri geislun en alla jafna, gervi­tungl geta slegið út og GPS leið­sagn­ar­kerfi orðið fyrir veru­legum trufl­unum. Engin áhrif eru á okkur sem erum á Jörðu niðri,“ segir hann.

 Líklega verður hraði sól­vinds­ins um 900 km/s þegar það skellur á Jörðinni. Vonandi verður Bz-gildið nei­kvætt og þétt­leik­inn hár. Það þýðir frá­bært norð­ur­ljósa­kvöld með nokkrum glæsi­legum og lit­ríkum hviðum og rauðum lit sem sést með berum augum.“

Hann bendir á vef­síðu sína, Ísland á nótt­unni, þar sem má fylgj­ast með norð­ur­ljósa­spá.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár