Reyndi að kaupa vændi sem verkalýðsforingi

Guð­brandur Ein­ars­son hefur sagt af sér þing­mennsku. Sandra Sig­urð­ar­dóttir úr Hvera­gerði kemur inn á þing.

Reyndi að kaupa vændi sem verkalýðsforingi
Guð­brandur Ein­ars­son Þing­maður Við­reisnar hefur sagt af sér emb­ætti.

Þing­maður Við­reisnar í Suð­ur­kjör­dæmi, Guð­brandur Ein­ars­son, hefur sagt af sér þing­mennsku til þess að tryggja að það nái að „ríkja algjört traust og friður“ eftir að hafa játað til­raun til vændis­kaupa 2012 í sam­tali við frétta­vef­inn Vísi, sem áform­aði umfjöllun um málið. Guð­brandur var yfir­heyrður hjá lög­reglu, sem hafði setið um fjöl­býl­is­hús þar sem vænd­is­sala átti sér stað.

Í sam­tali við Vísi við­ur­kennir Guð­brandur að hafa þrætt fyrir vændis­kaupin. Hann seg­ist núna ekki hafa full­framið vændis­kaupin, heldur hafi sér snú­ist hugur við fjöl­býl­is­húsið. 

Lögreglu sagði hann hins vegar að hann hefði ekki komið í húsið í til­gangi vændis­kaupa, heldur farið þangað í partý með fólki sem sótti árs­þing Alþýðu­sam­bands Íslands þá helgi.

Guð­brandur var á þessum tíma for­maður Versl­un­ar­manna­fé­lags Suð­ur­nesja og bjó í Keflavík. Þeirri stöðu gegndi hann árin 1998–2019, ásamt fjölda ann­arra trún­að­ar­staða tengdum störfum hans fyrir verka­lýðs­hreyf­ing­una. Meðal ann­ars sat hann í mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands og var í erinda­gjörðum sem slíkur þegar til­raun hans átti sér stað.

„Þetta voru stór mis­tök sem ég harma mjög, sér­stak­lega gagn­vart fjöl­skyldu minni og vinum en ekki síður sam­starfs­fólki í Viðreisn og á Alþingi. Ég geri mér fulla grein fyrir alvar­leika þessa máls og mun þurfa að ein­beita mér að fjöl­skyldu minni næstu daga og tjái mig því ekki frekar um málið,“ segir Guð­brandur í yfir­lýs­ingu til Vísis.

Við afsögn Guð­brandar tekur Sandra Sig­urð­ar­dóttir úr Hvera­gerði sæti á Alþingi, en hún var ein af for­sprökkum Okkar Hvera­gerðis sem vann kosn­inga­sigur í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Sandra er nú fram­kvæmda­stjóri þing­flokks og for­seti bæj­ar­stjórnar Hvera­gerð­is­bæjar.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár