Stórbruni í Gufunesi: Lögreglan segir fólki að loka gluggum

Íbúar í nágrenni við Gufunes eru beðnir að loka gluggum. Mikill eldur er laus í skemmu og leggur tals­verðan reyk yfir nær­liggj­andi hverfi.

Eldar logar í skemmu við Gufu­nes­veg í Reykja­vík. Í til­kynn­ingu seg­ist lög­reglan vilja koma þeim skila­boðum til íbúa sem búa í nágrenni við Gufu­nes­veg að loka gluggum.  Mikinn reyk leggur frá skemm­unni og leggur hann til suð­urs.

Til­kynn­ing barst um eld­inn laust eftir klukkan 17 í dag og er slökkvi­lið að störfum á svæð­inu. Skemman sem um ræðir er í eigu Reykja­vík­ur­borgar en kvik­mynda­fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Tru­eN­orth er með skemm­una í notkun. 

Samkvæmt RÚV er tals­vert að leik­munum geymdir í skemm­unni, sem nú stendur í ljósum logum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár