Blaðamenn Morgunblaðsins og mbl í eina sæng

Þær deildir innan rit­stjórnar Morg­un­blaðs­ins sem sinntu ann­ars vegar skrifum í prent­aða blaðið og hins vegar á vef­inn mbl.is hafa verið sam­ein­aðar. Sér­stakri við­skipta­út­gáfu hefur verið hætt.

Blaðamenn Morgunblaðsins og mbl í eina sæng

Ekki er lengur sér­stök deild sem sinnir frétta­þjón­ustu á mbl.is, vef Morg­un­blaðs­ins, heldur hafa allar þrjár frétta­deildir Morg­un­blaðs­ins verið sam­ein­aðar í eina. Þar með fellur niður form­leg skipt­ing milli blaða­manna sem skrifa fyrst og fremst fyrir vef­inn ann­ars vegar og prent­aða Morg­un­blaðið hins vegar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Morg­un­blað­inu þar sem greint er frá skipu­lags­breyt­ingum á rit­stjórn blaðs­ins og vefs­ins. Samhliða sam­ein­ingu almennra frétta­deilda hefur sér­stök við­skipta­deild einnig verið lögð niður og sam­einuð hinu nýja fyr­ir­komu­lagi.

Yfir sam­einaðri frétta­deild er nú aðal­frétta­stjóri, Matthías Johann­es­sen, sem áður stýrði við­skipta­deild Morg­un­blaðs­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að mark­mið breyt­ing­anna sé að efla sam­spil vefs og prentút­gáfu og tryggja áskrif­endum og les­endum öfl­ugri og skil­virk­ari frétta­þjón­ustu. Breytt umhverfi upp­lýs­inga og fjöl­miðl­unar kalli á auk­inn hraða, aukið sam­starf milli miðla og skil­virk­ari frétta­vinnslu.

Í kjöl­far breyt­ing­anna hættir viku­leg útgáfa Við­skipta­Mogg­ans. Á móti verður við­skipta­síðum í aðal­blaði Morg­un­blaðs­ins fjölgað og áhersla …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár