Netanyahu hittir Trump til að ræða frið og meiri hernað

Ísrael mun þrýsta á frek­ari hern­að­ar­gerðir gegn Íran og er talið tefja frið­ar­ferlið gagn­vart Palest­ínu.

Netanyahu hittir Trump til að ræða frið og meiri hernað
Trump og Net­anyahu Seinast for­seti Banda­ríkj­anna hitti Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, þrýsti sá fyrr­nefndi á að sá síð­ar­nefndi fengi náðun frá rann­sókn á spill­ing­ar­máli á hendur honum. Mynd: AFP

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, mun hitta Donald Trump í Flórída í dag, en Banda­ríkja­for­seti þrýstir á um að kom­ast á næsta stig í við­kvæmri vopna­hlé­s­á­ætlun sinni fyrir Gaza.

Einnig er búist við að Net­anyahu reyni að beina athygl­inni að Íran, í ljósi frétta um að hann muni kalla eftir frek­ari árásum Banda­ríkj­anna á íslamska lýð­veldið.

Fund­ur­inn í glæsi­hýsi Trumps, Mar-a-Lago er fimmti fundur leið­tog­anna tveggja sem hald­inn er í Banda­ríkj­unum á þessu ári. Hann er hald­inn í skugga þess að sumir emb­ætt­is­menn í Hvíta hús­inu ótt­ast að bæði Ísrael og Hamas séu að tefja annan áfanga vopna­hlés­ins, sam­kvæmt frétta­stofu AFP.

Trump, sem sagði Net­anyahu hafa beðið um við­ræð­urnar, er sagður vilja til­kynna – strax í jan­úar – um tækniræð­is­stjórn Palest­ínu­manna fyrir Gaza og upp­setn­ingu alþjóð­legs stöð­ug­leika­sveitar.

Leið­tog­arnir tveir munu funda klukkan 18 að íslenskum tíma.

Shosh Bedros­ian, tals­kona ísra­elsku rík­is­stjórn­ar­innar, sagði að Net­anyahu myndi ræða annan áfanga sam­komu­lags­ins, sem felur í sér að tryggja að „Hamas verði afvopnað og Gaza verði gert her­laust“.

Hann mun einnig taka upp „hætt­una sem stafar af Íran, ekki aðeins fyrir Mið-Aust­ur­lönd, heldur einnig Banda­ríkin,“ sagði Bedros­ian áður en hún flaug með ísra­elska for­sæt­is­ráð­herr­anum.

Síðustu mán­uði hafa ísra­elskir emb­ætt­is­menn og fjöl­miðlar lýst yfir áhyggjum af því að Íran sé að end­ur­byggja vopna­búr sitt af lang­drægum flug­skeytum eftir að það varð fyrir árás í 12 daga stríð­inu við Ísrael í júní.

Sina Toossi, rann­sak­andi við Center for International Policy (CIP) í Washington, sagði að full­yrð­ing Trumps um að árásir Banda­ríkj­anna í júní hefðu eyði­lagt kjarn­orku­á­ætlun Teheran hefði „fjar­lægt öfl­ug­ustu sögu­legu rétt­læt­ingu Ísraels fyrir stuðn­ingi Banda­ríkj­anna við stríð við Íran“.

Ný áhersla Net­anyahu á flug­skeyti Írans er „til­raun til að fram­leiða nýja stríðs­á­stæðu (Casus Belli),“ sagði Toossi við AFP.

Íran for­dæmdi frétt­irnar á mánu­dag sem „sál­fræði­lega aðgerð“ gegn stjórn­völdum í Teheran, lagði áherslu á að landið væri full­kom­lega reiðu­búið til að verja sig og var­aði við því að árás­ar­girni á ný myndi „hafa harka­legri afleið­ingar“ fyrir Ísrael.

„Annar áfangi verður að hefjast“

Heimsókn Net­anyahu er hápunkt­ur­inn á nokk­urra daga erind­rekstri vegna alþjóða­mála í Palm Beach, þar sem Trump tók á móti úkra­ínskum starfs­bróður sínum, Volody­myr Zelensky, í gær til við­ræðna um að binda enda á inn­rás Rúss­lands.

Vopna­hléið á Gaza í októ­ber er eitt af stóru afrekum Trumps á fyrsta ári hans aftur við völd, en stjórn hans og svæð­is­bundnir sátta­semj­arar vilja halda skrið­þung­anum.

Alþjóð­legur sendi­full­trúi Trumps, Steve Witkoff, og tengda­sonur Trumps, Jared Kushner, tóku fyrr í mán­uð­inum á móti hátt­settum emb­ætt­is­mönnum frá ríkjum sem hafa tekið að sér sátta­miðlun: Katar, Egypta­landi og Tyrk­landi.

Tíma­setn­ing fund­ar­ins með Net­anyahu er „mjög mik­il­væg,“ sagði Gershon Baskin, annar for­stöðu­maður frið­ar­nefnd­ar­innar Alliance for Two States, sem hefur tekið þátt í óform­legum samn­inga­við­ræðum við Hamas.

„Annar áfangi verður að hefj­ast,“ sagði hann við AFP og bætti við að hann telji „að Banda­ríkja­menn geri sér grein fyrir því að það sé of seint því Hamas hefur haft of mik­inn tíma til að end­ur­reisa við­veru sína.“

Fyrsti áfangi vopna­hléssam­komu­lags­ins kvað á um að Hamas myndi sleppa þeim gíslum sem eftir voru, bæði látnum og lif­andi, sem teknir voru í árás þeirra á Ísrael 7. októ­ber 2023. Hópurinn hefur hingað til skilað öllum lif­andi föngum og lík­ams­leifum allra nema eins.

Samkvæmt öðrum áfanga á Ísrael að draga sig til baka frá stöðum sínum á Gaza, á meðan Hamas á að leggja niður vopn – sem er stórt deilu­mál fyrir ísla­mista­hreyf­ing­una.

Á meðan á bráða­birgða­stjórn að stjórna palest­ínska svæð­inu og alþjóð­leg stöð­ug­leika­sveit (ISF) á að vera send á vett­vang.

Báðir aðilar hafa þó haldið fram tíðum brotum á vopna­hléinu.

„Svekktur út í Netanyahu“

Frétta­veitan Axios greindi frá því á föstu­dag að Trump vildi boða til fyrsta fundar nýs „frið­ar­ráðs“ fyrir Gaza sem hann mun stýra á Davos-ráð­stefn­unni í Sviss í jan­úar.

En þar kom fram að hátt­settir emb­ætt­is­menn í Hvíta hús­inu væru að verða pirraðir á því sem þeir litu á sem til­raunir Net­anyahu til að tefja frið­ar­ferlið.

„Það eru fleiri og fleiri merki um að banda­ríska stjórnin sé að verða svekkt út í Net­anyahu,“ sagði Yossi Mekel­berg, sér­fræð­ingur í mál­efnum Mið-Aust­ur­landa hjá hug­veit­unni Chatham House í London.

„Spurn­ingin er hvað hún ætlar að gera í því,“ bætti hann við, „því annar áfangi er eins og staðan er núna á leið­inni út í busk­ann.“

Ísrael heldur áfram að gera árásir á skot­mörk Hamas á Gaza, sem og Hezbollah í Líbanon þrátt fyrir annað vopna­hlé þar. Sýrland verður einnig á dag­skrá.

Mekel­berg sagði að Net­anyahu gæti verið að reyna að beina athygl­inni frá Gaza yfir á Íran þegar Ísrael gengur inn í kosn­ingaár.

„Allt er tengt því að halda völdum,“ sagði hann um hinn þaul­setna for­sæt­is­ráð­herra Ísraels.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár