Flutti frá Noregi til Egilsstaða á sviknu loforði: Sagt upp í miðju fæðingarorlofi

Konu í fæð­ing­ar­or­lofi var sagt upp hjá Aust­ur­brú á Egils­stöðum í nóv­em­ber. Konan var á árs­samn­ingi eftir að hafa flust búferlum frá Noregi með lof­orð upp á að samn­ingur hennar yrði fram­lengdur. Ekki var staðið við það.

Flutti frá Noregi til Egilsstaða á sviknu loforði: Sagt upp í miðju fæðingarorlofi
Lilja Sigríður Jóns­dóttir flutt­ist búferlum frá öðru landi með lof­orðið eitt í fartesk­inu. Það var svo svikið.

Aust­ur­brú á Egils­stöðum end­ur­nýj­aði ekki samn­ing við lög­fræð­ing­inn og verk­efna­stjóra ferða­mála, Lilju Sigríði Jóns­dóttur þrátt fyrir skýr lof­orð um annað í tölvu­póst­sam­skiptum. Lilja Sigríður flutt­ist frá Noregi í upp­hafi árs á lof­orð­inu einu um að Aust­ur­brú myndi fram­lengja árs langan samn­ing við hana, enda kostn­að­ar­samt og algjör umbreyt­ing á lífi hennar og fjöl­skyldu að flytj­ast búferlum fyrir starfið. Asturbrú dró hana svo á asna­eyrum í mán­uðum saman að hen­anr sögn, þegar hún reyndi að end­ur­nýja samn­ing eins og búið var að lofa. Lilja Sigríður segir ágrein­ingin hafa verið um fæð­ing­ar­or­lofið hennar, en henni var til­kynnt í miðju orlofi að samn­ing­ur­inn yrði ekki fram­lengdur vegna fjár­skorts.

Ólga innan Austurbrúar

„Það er bara verið að kippa undan okkur fót­unum,“ segir Lilja Sigríður sem telur stofn­un­ina varla trausts­ins virði geti hún ekki efnt lof­orð sín. Lilja er í stétt­ar­fé­lagi lög­fræð­inga sem skoða nú málið. Nokkrum öðrum var sagt upp á sama …

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PG
    Palli Garðarsson skrifaði
    Hún komandi frá Noregi þar sem ekki er hægt að segja upp starfsmanni án haldgóðarar ástæðu. Ef um sparnað er að ræða er ekki hægt að ráða í starfið næstu 6 mánuði. Ísland er elítuland þar sem þeir einu sem hafa réttindi eru þeir sem eru í stjórnunarstörfum og þar fá þeir oft áratuga laun verkapakksins ef þeim dettur sjálfum til hugar að segja upp.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvaða stjórnmálaflokkar eru við völd í Austurbrú ? Eru það helmingaskiptaflokkarnir framsóknarflokkur og sjálfstæðisflokkur ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár