Morgunblaðið og Sýn fá yfir 100 milljónir frá ríkinu

Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og Sýn, stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, fá tæpar 104 millj­ónir hvort í styrk frá rík­inu. Bænda­blaðið skil­aði umsókn of seint og verður því af styrk þetta árið. Í heild var sótt um styrk fyrir rúman millj­arð króna en um 545 millj­ónir voru til úthlut­unar.

Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, Árvakur, og Sýn, sem heldur úti sam­nefndri sjón­varps­stöð sem og Vísi, Bylgj­unni og fleiri útvarps­stöðvum, fá hæstu rík­is­styrk­ina sem veittir eru í ár til einka­rek­inna fjöl­miðla. 30 fjöl­miðlar sóttu um en 28 fengu styrk. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið, sem gefur út Heim­ild­ina, Vís­bend­ingu og Mannlíf, hlaut þriðja hæsta styrk­inn, upp á tæpar 78 millj­ónir króna. Myllu­setur, sem gefur út Við­skipta­blaðið og Frjálsa verslun, fékk 42 millj­ónir og Fjöl­miðla­torgið, sem heldur úti DV.is og fleiri miðlum, fékk tæpar 39 millj­ónir. Aðrir fengu minna, innan við 20 millj­ónir hver. 

544.020.973
krónur
heild­ar­um­fang úthlut­aðra styrkja

Úthlutað er úr fyr­ir­framá­kveðnum potti, sem í ár var 544.020.973 krónur, en sam­tals var sótt um rekstr­ar­stuðn­ing upp á 1.000.220.781 krónur, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Fjöl­miðla­nefndar , sem ann­ast úthlut­un­ina. Sú fjár­hæð end­ur­speglar 25 pró­sent af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár