Inga yfir þremur ráðuneytum

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, fer nú fyrir öllum þremur ráðu­neyt­unum sem flokkur hennar hefur mannað. Eyjólfur Ármanns­son er kom­inn í fæð­ing­ar­or­lof og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son er í veik­inda­leyfi.

Inga yfir þremur ráðuneytum
Öll völd Inga er nú með völd í þremur ráðu­neytum – öllum þeim sem flokk­ur­inn hennar hefur leitt. Mynd: Víkingur

Inga Sæland fer nú með yfir­stjórn allra þeirra ráðu­neyta sem eru á for­ræði Flokkur fólks­ins, eftir að Eyjólfur Ármanns­son, inn­við­a­ráð­herra, tók tíma­bundið leyfi vegna feðra­or­lofs.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu mun Inga, sem er félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, leysa Eyjólf af á meðan leyf­inu stendur og fara jafn­framt með mál­efni inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins og mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins. Eyjólfur fer þar með í leyfi frá báðum ráðu­neytum sem hann hefur haft á sinni könnu.

Eyjólfur tók við stjórn mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins í veik­inda­leyfi Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, en hafði áður ein­göngu farið með inn­við­a­ráðu­neytið.

Í til­kynn­ing­unni kemur jafn­framt fram að Eyjólfur muni gera hlé á feðra­or­lofi sínu upp úr miðjum jan­úar til að mæla fyrir nýrri sam­göngu­á­ætlun á Alþingi.

Með þessu fer Inga Sæland nú tíma­bundið með öll ráð­herra­emb­ætti sem Flokkur fólks­ins hefur í rík­is­stjórn­inni.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár