Hluti auglýsingatekna RÚV renni til annarra miðla

Logi Ein­ars­son, menn­ing­ar,- ný­sköp­un­ar og há­skóla­ráð­herra, hef­ur til­kynnt að með­al að­gerða sem hann hyggst ráð­ast í á sviði fjöl­miðla sé að einka­rekn­ir fjöl­miðl­ar fái hluta af aug­lýs­inga­tekj­um RÚV. Hann hyggst einnig hækka al­menn­an stuðn­ing við fjöl­miðla.

Hluti auglýsingatekna RÚV renni til annarra miðla

Logi Einarsson, menningar,- nýsköpunar og háskólaráðherra, tilkynnti í dag aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla.

Meðal þeirra tuttugu aðgerða sem hann hyggst leggjast í eru að um 12 prósent hluti auglýsingatekna RÚV verði látinn renna til annarra fjölmiðla. Þá verði allt auglýsingafé umfram tiltekið hámark látið renna óskipt í sama stuðningsumhverfi. Er þetta til viðbótar við það fjármagn sem þegar rennur til einkarekinna fjölmiðla. 

Sagði Logi að þessi leið væri talin best til þess fallin að tryggja að auglýsingafé rynni ekki úr landi og skilaði sér til annarra fjölmiðla. 

Enn fremur hefur ráðuneyti Loga og fjármálaráðuneytið ákveðið að hefja vinnu um hvernig megi létta af rekstri RÚV kostnaði vegna eldri lífeyrisskuldbindinga. 

Hvati til að sinna almannaþjónustuhlutverki

Meðal annarra aðgerða eru að almennur stuðningur við fjölmiðla verði hækkaður umtalsvert og fyrirsjáanleiki aukinn. Frumvarp til laga um þetta verði lagt fram á vorþingi 2026 og komi strax til framkvæmda. 

Enn fremur verði stuðningur aukinn við fjölmiðla sem sinni almannaþjónustuhlutverki, til dæmis með því að stunda fjölbreyttan, daglegan fréttaflutning sem nær yfir landið allt og hefur ákveðinn fjölda blaðamanna í vinnu. „Þetta er ekki til að styðja bara við þá sem þegar gera þetta, heldur sem hvati til annarra að stefna í þessa átt,“ sagði Logi. 

Til að sporna við þeim auglýsingatekjum sem renna í æ ríkari mæli til alþjóðlegra tæknifyrirtækja svo sem samfélagsmiðla segist Logi hafa litið til aðgerða sem önnur ríki hafa gripið til. Þetta sé þó flókið að takast á við. Því verði þó beint til ráðuneyta og undirstofnana ríkisins að beina auglýsingakaupum sínum til fjölmiðla, frekar en samfélagsmiðla. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
1
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
4
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Huldu­fé bak við fund Sig­mund­ar Dav­íðs og Re­públi­kana

Jane Mayer, blaða­mað­ur hjá The New Yor­ker, seg­ir millj­arða­mær­inga fjár­magna sam­tök­in Turn­ing Po­int sem borg­uðu Norð­ur­landa­ferð hóps Re­públi­kana að hitta formann Mið­flokks­ins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængn­um. Hún hef­ur rann­sak­að net Char­les Koch sem nær til Ís­lands. Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son hef­ur ekki svar­að því hver greiddi ferð hans.
Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni
5
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Ungt Mið­flokks­fólk í al­þjóð­a­starfi tengdu MAGA-hreyf­ing­unni

Ungt Mið­flokks­fólk hef­ur sótt við­burði er­lend­is tengda neti hægris­inn­aðra hug­veitna. Fram­bjóð­andi til borg­ar­stjórn­ar fór fyr­ir hönd Mið­flokks­ins á ráð­stefnu með Trump-áhrifa­vald­in­um James O’Keefe og hol­lensk­um aktíf­ista sem varð þekkt­ur fyr­ir hómó­fób­ísk fúkyrði og að syngja nas­ista­söngva.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár