Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni

Ungt Mið­flokks­fólk hefur sótt við­burði erlendis tengda neti hægri­s­inn­aðra hug­veitna. Fram­bjóð­andi til borg­ar­stjórnar fór fyrir hönd Mið­flokks­ins á ráð­stefnu með Trump-áhrifa­vald­inum James O’Keefe og hol­lenskum aktíf­ista sem varð þekktur fyrir hómó­fó­bísk fúk­yrði og að syngja nas­ista­söngva.

Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni
Hlédís Maren og James O'Keefe Fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins var í við­tali hjá Trump-tengdum aktí­vista.

Ungt Mið­flokks­fólk hefur und­an­farið setið fundi erlendis þar sem áhrifa­valdar úr MAGA-hreyf­ing­unni og aktíf­istar úr evr­ópskum hægri-öfga­hreyf­ingum deila með þeim svið­inu.

Fram­bjóð­andi í 4. sæti á lista Mið­flokks­ins til borg­ar­stjórnar, Hlédís Maren Guð­munds­dóttir, hefur sem full­trúi Mið­flokks­ins sótt við­burði á vegum hug­veitn­anna New Direction og Nordic Sidebar á Norð­ur­lönd­unum. Nordic Sidebar er hug­veita sem Katie Hagström, stjórn­ar­maður Nordic Republicans og milli­liður við Trump-tengdu sam­tökin Turning Point, stýrir.

Á slíkum fundi í Helsinki í febr­úar var Hlédís Maren í við­tali hjá James O’Keefe, alræmdum aktíf­ista frá Banda­ríkj­unum sem hefur dreift fölskum upp­lýs­ingum um að for­seta­kosn­ing­unum 2020 hafi verið stolið frá Donald Trump.

Heim­ildin hefur áður greint frá því að alþjóða­full­trúi Mið­flokks­ins sem einnig er í fram­boði í Reykja­vík, Breki Atlason, sé Íslands­full­trúi Students for …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    MAGA is a pest and pandemic!
    5
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ha?er Altað komast aftur í gamla farið eins og áður fyrr?mer sýnist það á óllu svo hann Sigmundur greyið er þa laumunasisti eftir alt saman enda var kallinn aldrei ánægður með það að hafa mig í fjölskyldunni sinni þegar hann sá mig fyrstþótthannleti ekki á neinu bera
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Sækjast sér um líkir.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár