Jöklar Íslands kanarífuglar í kolanámunni

„Ísland er í ein­stakri stöðu til að leiða lausn­irnar með því að breyta vel­gengni sinni á sviði end­ur­nýj­an­legrar orku yfir í alþjóð­lega ábyrgð,“ segir Tzeporah Berman, stofn­andi Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty Ini­ti­ative. Hún heim­sótti landið í febr­úar til að hvetja yfir­völd til þátt­töku að sátt­mála sem bindur enda á útbreiðslu jarð­efna­elds­neytis.

Jöklar Íslands kanarífuglar í kolanámunni
Tzeporah Berman „Ég held að það sem er að ger­ast á jöklum Íslands sé saga sem eigi erindi við heim­inn.“ Mynd: Golli

„Ísland gæti orðið fyrsta Evr­ópu­landið til að ganga til liðs við vax­andi hóp þjóða sem er að þróa sátt­mála um jarð­efna­elds­neyti,“ segir Tzeporah Berman, stofn­andi Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty Ini­ti­ative, alþjóð­legs tengsla­nets sem hefur það mark­mið að binda enda á útbreiðslu jarð­efna­elds­neytis í gegnum alþjóð­legan sátt­mála. Berman hefur verið aðgerðasinni í yfir þrjá­tíu ár og var árið 2024 á lista TIME100 yfir áhrifa­mestu leið­toga heims í lofts­lags­málum. Í febr­úar heim­sótti hún Ísland til þess að hvetja yfir­völd til þess að taka þátt í sam­tal­inu um sátt­mál­ann. 

Á meðan Íslands­dvöl­inni stóð var för Berman heitið upp á Sól­heima­jökul ásamt hópi aðgerða­sinna og lista­fólks sem flutti tón­list­ar­at­riði, ræður og gjörn­inga í dalnum við jök­ul­sporð­inn sem var þak­inn ís ekki alls fyrir löngu. Í frost­inu, undir bláum himni, hljóm­aði ómþýð rödd tón­list­ar­kon­unnar Néfur í bland við hljóð­upp­tökur af dýnamískum jökl­inum sjálfum – brak, þrusk, ískur og renn­andi vatn sem áður var ís. …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið undanfarið ár