Vill að lífsreynslan verði til þess að eitthvað breytist

Fjöl­skylda sem varð fyrir snjó­flóð­inu á Flateyri árið 1995 berst fyrir því að það verði rann­sakað. Sóley Eiríks­dóttir, sem var ell­efu ára þegar flóðið féll, vill ekki að lífs­reynsla hennar verði til einskis, heldur leiði til breyt­inga.

Kalla eftir rannsókn
Kalla eftir rann­sókn Frá vinstri: Óli Örn Eiríks­son, Vilborg Saga Stef­áns­dóttir, Sóley Eiríks­dóttir, Eiríkur Guð­munds­son, Ragna Óla­dóttir, Sól­mundur Óli Svönuson og Svana Björg Eiríks­dóttir. Mynd: Golli

Sóley Eiríks­dóttir var ell­efu ára gömul þegar henni var bjargað úr rústum heim­ilis síns eftir að snjó­flóð féll á Flateyri í októ­ber 1995 og varð 20 manns að bana. Sóley vill að lífs­reynsla hennar verði til þess að eitt­hvað breyt­ist. „Ég þoli ekki að ég hafi lent í þessu og að það sé til einskis. Þess vegna hef ég svo mikla þörf á því að tala um þetta.“

Sóley og fjöl­skylda hennar hafa kallað eftir því að rann­sókn verði gerð á snjó­flóð­inu á Flateyri, líkt og var gerð nýlega um flóðið sem varð í Súðavík níu mán­uðum fyrr. „Það er margt sem hefur ekki komið upp á yfir­borðið,“ segir hún. 

Sóley og Eiríkur Guð­bjartur Guð­munds­son, faðir hennar, segja við Heim­ild­ina að þau vilji að allt komi upp á yfir­borðið og að lær­dómur verði dreg­inn af þeim mis­tökum sem voru gerð. „Við ætlum að passa að þetta komi ekki …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár