Trump með „persónuleika alkóhólista“ segir starfsmannastjórinn hans

Starfs­manna­stjóri Donalds Trumps, Susie Wiles, sagði Banda­ríkja­for­seta vera með „per­sónu­leika alkó­hólista“ í grein sem Vanity Fair birti í dag. Umfjöll­unin byggir á nokkrum við­tölum sem tekin voru við hana.

Susie Wiles, starfs­manna­stjóri Donalds Trumps, sagði Banda­ríkja­for­seta vera með „per­sónu­leika alkó­hólista“ í við­tali sem Vanity Fair birti á þriðju­dag, en Wiles lýsti grein­inni umsvifa­laust á bug og kall­aði hana árás. 

Wiles kall­aði einnig vara­for­set­ann JD Vance „sam­sær­is­kenn­inga­smið“, tækni­jöf­ur­inn Elon Musk „skrít­inn fugl“ og lét í ljós safa­ríkar skoð­anir á öðrum emb­ætt­is­mönnum í stjórn Trumps í þess­ari löngu grein.

Trump hefur áður lýst Wiles, fyrstu kon­unni til að gegna emb­ætti starfs­manna­stjóra Hvíta húss­ins, sem „ísmeyg­inni“ og þakkað henni fyrir hlut­verk sitt í að knýja áfram annað for­seta­tíma­bil hans á bak við tjöldin.

En hin 68 ára gamla kona er nú komin í sviðs­ljósið eftir grein Vanity Fair, sem tíma­ritið sagði byggða á röð við­tala við hinn reynda stjórn­mála­blaða­mann Chris Whipple á síð­asta ári.

„Greinin sem birt var snemma í morgun er óheið­ar­lega upp­sett nið­ur­rif á mér og besta for­seta, starfs­fólki Hvíta húss­ins og rík­is­stjórn sög­unnar,“ sagði …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár