Aðalsteinn vill leiða Viðreisn

Aðal­steinn Leifsson aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og vara­þing­maður Við­reisnar gefur kost á sér í odd­vita­sæti fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á næsta ári. Hann fer í launa­laust leyfi frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Aðalsteinn vill leiða Viðreisn
Aðal­steinn Leifsson Í fram­boði fyrir Viðreisn. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Aðal­steinn Leifsson, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og vara­þing­maður Við­reisnar, hefur til­kynnt að hann vilji leiða Viðreisn í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík í vor. Hann mun taka sér launa­laust leyfi frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu á sama tíma. 

Í frétta­til­kynn­ingu segir: „Aðal­steinn hefur víð­tæka reynslu úr stjórn­sýslu, alþjóða­málum og aka­demíu. Hann hefur meðal ann­ars gegnt emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara, verið lektor og leitt MBA-námið í Háskól­anum í Reykja­vík auk þess að starfa sem skrif­stofu­stjóri hjá EFTA í Genf og Brussel. 

Aðal­steinn hefur jafn­framt tekið þátt í fjöl­mörgum umbóta­verk­efnum í gegnum tíð­ina, til dæmis sem stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lit­is­ins eftir efn­hags­hrunið og í fag­legri stjórn sem tók þátt í að snúa rekstri Orku­veitu Reykja­víkur til betri vegar.“

„Það er sterkt ákall um breyt­ingar í Reykja­vík með áherslu á grunn­þjón­ustu. Við þurfum að til í rekstri og setja meiri áherslu á grunn- og leik­skóla sem og skipu­lags- og hús­næð­is­mál. Við getum gert svo mikið betur,“ segir Aðal­steinn. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár