Almennur borgari vann hetjudáð við að stöðva skotmenn

Hryðju­verka­menn skutu á mann­fjölda sem fagn­aði jóla­há­tíð Gyðinga á Bondi Beach í Sydney.

Almennur borgari vann hetjudáð við að stöðva skotmenn
Eftir skotárás­ina Kona heldur á barni sínu í teppi eftir skotárás á Bondi Beach í Sydney í dag. Mynd: AFP

Myndband sýnir hvernig almennur borg­ari náði að yfir­buga skot­mann við fjöldamorð á Bondi-strönd­inni í Sydney í Ástralíu í dag. Árásin hefur verið skil­greind sem hryðju­verk sem beind­ist gegn Gyðingum.

Minnst 11 eru látin. Annar tveggja skot­mann­anna lést í átökum við lög­reglu og hinn er í haldi. Fólkið sem hryðju­verka­menn­irnir skutu var að fagna Hanukkah, jóla­há­tíð Gyðinga.

Neyð­ar­við­bragðs­að­ilar fluttu 29 aðra á ýmsa spít­ala frá strönd­inni, sem er einn helsti ferða­manna­staður stærstu borgar Ástralíu.

Anthony Albanese, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, sagði í dag að skotárásin á Bondi Beach væri „óskilj­an­leg“ og hrós­aði „hetj­unum“ sem stukku til og hjálp­uðu.

„Við höfum séð Ástrali hlaupa í átt að hætt­unni í dag til að hjálpa öðrum. Þessir Ástralir eru hetjur og hug­rekki þeirra hefur bjargað manns­lífum.“

Chris Minns, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Suður-Wales, heiðrar sömu­leiðis mann­inn sem var mynd­aður í glímu við einn árás­armann­anna, þar sem hann náði byssu hans og neyddi hann til að hörfa.

„Þessi maður er sönn hetja og ég efast ekki um að margir, margir eru á lífi í kvöld vegna hug­rekkis hans.“

Sprengja í bíl

Ástr­alska lög­reglan sagði á blaða­manna­fundi fyrir skemmstu að mann­skæða skotárásin á Bondi Beach í Sydney væri „hryðju­verk“.

„Vegna aðstæðna í tengslum við atvikið í kvöld klukkan 21:36 lýsti ég þetta yfir sem hryðju­verk,“ sagði Mal Lanyon, lög­reglu­stjóri í Nýja-Suður-Wales, á fund­inum.

Svo virð­ist sem árás­ar­menn­irnir hafi haft meira í hyggju. „Við höfum fundið heima­til­búna sprengju í bíl sem er tengdur látna árás­armann­inum,“ sagði lög­reglu­stjór­inn.

Árás á Gyðinga er árás á alla

„Þetta er mark­viss árás á ástr­alska gyð­inga á fyrsta degi hanúkka, sem ætti að vera gleði­dagur, hátíð trú­ar­innar – ill­virki, gyð­inga­hatur, hryðju­verk sem hefur hitt þjóð okkar í hjarta­stað,“ sagði Anthony Albanese for­sæt­is­ráð­herra í sjón­varps­ávarpi.

„Árás á ástr­alska gyð­inga er árás á alla Ástrala.“

Skotárásin átti sér stað á árlegum við­burði sem kall­ast „Hanúkka við sjó­inn“ síð­degis á Bondi-strönd.

Isaac Herzog, for­seti Ísraels, for­dæmdi skotárás­ina sem „grimmi­lega árás á gyð­inga“ og hvatti áströlsk yfir­völd til að herða bar­átt­una gegn gyð­inga­hatri.

Mann­fjöldi flúði í ofboði frá strönd­inni í aust­ur­hluta Sydney, sem laðar að sér fjölda brim­bretta­fólks, sund­gesta og ferða­manna, sér­stak­lega um helgar.

„Við heyrðum skotin. Þetta var átak­an­legt, það var eins og 10 mín­útur af bara bang, bang, bang. Þetta virt­ist vera öfl­ugt vopn,“ sagði Camilo Diaz, 25 ára nemi frá Chile, við AFP á staðnum.

Neyð­ar­þjón­usta brást fyrst við til­kynn­ingum um skot­hríð klukkan 18:47 (07:47 að íslenskum tíma), að sögn lög­regl­unnar í Nýja-Suður-Wales.

„Blóð úti um allt“

Eitt vitni, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagð­ist per­sónu­lega hafa séð sex látna eða særða liggja á strönd­inni.

Gras­brekkan með útsýni yfir Bondi-strönd var yfir­full af munum sem fólk hafði skilið eftir í ofboði, þar á meðal yfir­gef­inni barna­kerru, að sögn blaða­manns AFP á staðnum.

Sjúkra­flutn­inga­menn sinntu mörgum sem lágu á gras­inu við strönd­ina, eins og sést á myndum sem rík­is­út­varpið ABC birti.

Vopn sem virt­ist vera hagla­byssa lá við tré við strönd­ina.

Breskur ferða­maður sagði AFP að hann hefði séð „tvo svart­klædda skot­menn“ eftir að skot­hríðin hófst.

„Það var skotárás, tveir svart­klæddir skot­menn með hálf­sjálf­virka riffla,“ sagði Timothy Brant-Coles við AFP og sagð­ist hafa séð marga sem höfðu verið skotnir og særðir.

Annað vitni, 30 ára íbúi að nafni Harry Wilson, sagði við Sydney Morning Herald að hann hefði séð „að minnsta kosti 10 manns á jörð­inni og blóð út um allt“.

Sveit­ar­stjórn Waverley, sem fer með mál­efni Bondi-strandar, lýsti  „djúp­stæðri hryggð“ vegna árás­ar­innar.

„Hugur okkar og bænir eru hjá öllum þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum af þessu hræði­lega ill­virki, sem átti sér stað á meðan hanúkka-hátíð­ar­höld stóðu yfir,“ sagði tals­maður sveit­ar­stjórn­ar­innar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár