Fimmföldun miðaverðs á HM í knattspyrnu

Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu í Banda­ríkj­unum, Kanada og Mexíkó sniðið að sterk­efn­uðu fólki. Dýnamísk verð­lagn­ing hækkar ódýr­ustu mið­ana Evr­ópskir fót­bolta­á­huga­menn mót­mæla.

Fimmföldun miðaverðs á HM í knattspyrnu
Ný verð­lagn­ing Gianni Infantino, for­seti Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kynna drátt í riðla­keppi FIFA, á sama við­burði og Trump var sæmdur nýjum frið­ar­verð­launum FIFA: Mynd: AFP

Verð á aðgang­smiðum á heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu 2026 í Banda­ríkj­unum, Kanada og Mexíkó hefur vakið mikla reiði meðal stuðn­ings­manna víða um heim. Dæmi eru um að ódýr­asti miði á úrslita­leik­inn kosti yfir 4.000 banda­ríkja­dali, um 580 þús­und krónur á núver­andi gengi, og dýr­asti miði rúm­lega 8.600 dali, eða um 1,1 milljón króna.

Tryggustu aðdáendurnir fá dýrustu miðana

Óánægja bloss­aði upp eftir að FIFA úthlut­aði sér­tökum miða­pakka til lands­liða­sam­banda, svo­kall­aðri PMA-úthlutun (Participating Member Association). Þessir miðar eru ætl­aðir trygg­ustu aðdá­endum sem safnað hafa stigum í holl­ustu­kerfum og ferða­hópum lands­liða.

Samkvæmt sam­tök­unum Football Supp­orters Europe (FSE) þarf dyggur stuðn­ings­maður að greiða að lág­marki um 900 þús­und krónur (6.900 dali) til að fylgja sínu liði frá fyrsta leik í riðla­keppn­inni og allt í úrslita­leik – nærri fimm­falt meira en á síð­asta heims­meist­ara­móti í Katar.

Í fyrsta sinn í sögu heims­meist­ara­móts­ins verður ekki fast verð á leikjum í riðla­keppn­inni. Þá eru ódýr­ustu mið­arnir, í flokki 4, settir í sölu síðar, og þá með dýnamískri verð­lagn­ingu, breyti­legu verði sem stýr­ist af eft­ir­spurn, sem leitt hefur til mik­illar hækk­unar miða­verðs. Þetta þýðir að stuðn­ings­fólk frá mis­mun­andi þjóðum mun borga mis­mun­andi verð fyrir leiki á sama stigi móts­ins.

„Þetta eru gríð­ar­leg svik við hefðir heims­meist­ara­móts­ins og er litið fram hjá fram­lagi stuðn­ings­fólks til þess sjón­ar­spils sem keppnin er,“ sagði í yfir­lýs­ingu Samtaka evr­ópska knatt­spyrnu­á­han­genda (FSE).

Samtökin segja í yfir­lýs­ingu að þau séu „slegin yfir okur­verði“ sem FIFA leggi á trygg­ustu stuðn­ings­menn­ina og kalla eftir því að sala þess­ara miða verði stöðvuð „þar til lausn finnst sem virðir hefðir, alþjóð­legt eðli og menn­ing­ar­legt vægi heims­meist­ara­móts­ins“.

„Ódýrir“ miðar ekki í boði fyrir tryggustu aðdáendurna

FIFA hefur ítrekað haldið því fram að HM 2026 verði „á við­ráð­an­legu verði“ og bendir á að almenn sala inn á riðla­keppn­is­leiki byrji á um 8.000 krónum (60 doll­urum) í ódýr­ustu flokkum, en sem fyrr segir getur miða­verð þró­ast eftir eft­ir­spurn.

Þeir miðar eru hins vegar ekki í boði í PMA-úthlut­un­inni til lands­liða­sam­band­anna. Það þýðir að stuðn­ings­menn sem hafa fylgt liðum sínum árum saman, safnað stigum og ferð­ast vítt og breitt, þurfa að greiða marg­falt meira en aðrir áhorf­endur sem taka þátt í almennum útdrætti á heima­síðu FIFA.

Ferðakostnaður og vaxandi gremja

Miða­verðið er aðeins hluti heild­ar­kostn­aðar. HM 2026 fer fram í 16 borgum í þremur löndum, og þurfa aðdá­endur að búa sig undir háan flug- og gisti­kostnað, sér­stak­lega í stór­borgum Banda­ríkj­anna. Fjöl­miðlar og stuðn­ings­manna­sam­tök benda á að ferða­lag fjöl­skyldu eða vina­hóps geti auð­veld­lega farið yfir margar millj­ónir króna ef liðið kemst langt í keppn­inni.

Sumir hafa einnig bent á að banda­rískar reglu­gerðir um vega­bréfs­á­rit­anir geti gert ferð­ina flókn­ari og vara­sam­ari, þar sem umsækj­endur um ferða­vega­bréfs­á­ritun gætu þurft að afhenda fimm ára sögu af sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum sínum.

Stuðn­ings­menn ótt­ast að þeir sem hafi fylgt lands­liðum sínum í ára­tugi verði víkj­andi fyrir sterk­efn­uðum áhorf­endum sem ein­fald­lega hafa efni á að greiða hvað sem er. Það gæti dregið úr stemn­ingu og laskað „sál“ keppn­innar á völl­unum í Norður-Ameríku sum­arið 2026, að mati gagn­rýnenda.

FIFA segir verðið endurspegla markaðinn

FIFA hefur svarað gagn­rýn­inni með því að vísa til þess að verð­lagn­ingin fylgi „mark­aðsvenjum“ stórra íþrótta- og skemmt­ana­við­burða í Norður-Ameríku og að mark­mið sé að tryggja „sann­gjarnan aðgang“ bæði fyrir núver­andi og nýja áhorf­endur. Sam­bandið bendir jafn­framt á að tekjur af mót­inu renni til upp­bygg­ingar knatt­spyrnu um allan heim.

Þau svör hafa þó lítil áhrif haft á kröfur stuðn­ings­manna­sam­taka, sem krefj­ast þess að hætt verði við núver­andi miða­sölu og hafin víð­tæk sam­ráð við stuðn­ings­menn, lands­liða­sam­bönd og aðra hags­muna­að­ila um nýtt fyr­ir­komu­lag.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár