Útvarpsstjóri: „Enginn friður eða gleði í tengslum við þessa keppni“

Útvarps­stjóri segir að snið­ganga Íslands á Eurovision hafi verið tekin á dag­skrár­legum for­sendum. Keppnin verður þó enn send út. Stjórn­ar­for­maður RÚV fagnar ákvörð­un­inni en segir „alls ekki“ hafa verið ein­hug innan stjórn­ar­innar um hana.

Útvarpsstjóri: „Enginn friður eða gleði í tengslum við þessa keppni“

Greiða átti atkvæði um til­lögu stjórn­ar­for­manns á fundi stjórnar RÚV þess efnis að Ísland yrði ekki með í Eurovision. Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri upp­lýsti hins vegar stjórn­ina á fund­inum að fram­kvæmda­stjórn hefði ákveðið í gær að taka ekki þátt í keppn­inni á næsta ári. Tillaga stjórnar var því óþörf.

Ísland er fimmta landið til að ákveða að snið­ganga Eurovision sem mun fara fram í Vín í Aust­ur­ríki á næsta ári. 

„Ein­fald­lega út af því að það er eng­inn friður eða gleði í tengslum við þessa keppni eins og staðan er núna,“ sagði Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri við blaða­menn að loknum fundi stjórnar. Á þeirri for­sendu hafi verðið ákveðið að draga sig í hlé. Að hans sögn tók stjórn RÚV því vel. 

„Fyrir mína hönd segi ég: Til ham­ingju Ísland,“ sagði Stefán Jón Hafstein, stjórn­ar­for­maður RÚV, að fund­inum loknum. Að hans mati væri nið­ur­staðan far­sæl.

Dagskrárlegar forsendur

Útvarps­stjóri skýrði að ákvörð­unin hefið verið tekin á dag­skrár­legum for­sendum. Þegar við­burður vekur ekki gleði og sam­einar ekki þjóð­ina lengur sé ástæða til að hugsa sinn gang. „Það er aug­ljóst að þessi keppni er ekki að sam­eina okkur með sama hætti og verið hefur und­an­farin ár af ástæðum sem blasa við öllum og þess vegna er þessi ákvörðun tekin.“ Í henni fælust ekki póli­tísk skila­boð af hálfu RÚV.

Stjórn­ar­for­maður RÚV sagði aðspurður að það hefði „alls ekki“ verið ein­hugur meðal stjórn­ar­manna um þessa nið­ur­stöðu. „En hún fékkst og það var alveg nægur meiri­hluti fyrir því innan stjórn­ar­innar að aft­ur­kalla þátt­töku í Eurovision.“

Eurovision verður enn send út, sem og atriði Ísraels. „Við erum ekki í neinni rit­skoðun hér,“ segir útvarps­stjóri. 

Alvarlegar athugasemdir við morð á fréttamönnum

Grunnur ákvörð­un­ar­innar er staðan á Íslandi. „Það er erfitt að fá lista­menn til þátt­töku í þessu verk­efni,“ sagði útvarps­stjóri. Hann hefði enn fremur komið því á fram­færi við Samband evr­ópskra sjón­varps­stöðva (EBU) að fram­ferði Ísra­els­manna á Gaza gagn­vart fjöl­miðla­mönnum væri með þeim hætti að ekki væri annað hægt en að gera mjög alvar­legar athuga­semdir. „Það er eitt­hvað sem við getum gert og beitt okkur fyrir á vett­vangi EBU í þessu sam­hengi og það höfum við gert.“

Stefán Jón greip þá keflið og sagði að um fjöl­miðlapóli­tíska stefnu­mótun væri að ræða. „Sem felst í því að mót­mæla því að eitt aðild­ar­ríki beiti frétta­banni, rit­skoðun og morðum á frétta­mönnum. Það eru aðferðir sem EBU eiga ekki að líða þátt­töku­ríki.“ Þrátt fyrir að átök­unum hefði linnt á Gazasvæðinu væri það enn ótrú­lega slæmt. „Þetta er ekki vopna­hlé í þeim skiln­ingi sem við höfum.“

Stjórn­ar­for­maðurStefán Jón Hafstein er for­maður stjórnar RÚV.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár