Fer ekki í prófkjör Samfylkingarinnar vegna innflytjendastefnu flokksins

Sabine Leskopf, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, segir flokk­inn á lands­vísu fara með „gíf­ur­legri hörku gagn­vart við­kvæmum hópum sam­fé­lags­ins, þar á meðal börnum á flótta“.

Fer ekki í prófkjör Samfylkingarinnar vegna innflytjendastefnu flokksins
Sabine Leskopf Borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar býður sig ekki fram fyrir flokk­inn í vor. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sabine Leskopf, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist heyra á sam­fé­lagi inn­flytj­enda að and­rúms­loftið í sam­fé­lag­inu hafi breyst til hins verra. Flokk­ur­inn tali inn í for­dóma og stað­al­myndir eða þegi yfir árásum og andúð í garð við­kvæmra hópa.

Hún hefur ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

„Þetta er ekki auð­veld ákvörðun, og mig langar að færa rök fyrir henni gagn­vart öllum ykkar sem hafið stutt mig í gegnum minn póli­tíska feril síðan ég tók fyrstu skrefin sem vara­borg­ar­full­trúi árið 2014, en líka í allri minni bar­áttu fyrir betra sam­fé­lagi und­an­farin tutt­ugu ár,“ skrifar hún í færslu á Facebook.

„Ég fann mitt póli­tíska heim­ili innan Sam­fylk­ing­ar­innar einmitt vegna þess að mál­efni inn­flytj­enda, sem ég brenn mest fyrir, eru í raun­inni hjarta jafn­að­ar­stefn­unnar. Hún snýst um það að sam­fé­lög geta aðeins dafnað ef hver ein­stak­lingur fær að njóta sín til fulls, óháð upp­runa sínum. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár