Hvar er friðarverðlaunahafinn?

Eftir aflýstan blaða­manna­fund vakna spurn­ingar um hvar María Corina Machado, frið­ar­verð­launa­hafi Nóbels, er stödd. Hún er sökuð um „sam­særi, hvatn­ingu til hat­urs og hryðju­verk“ af ein­ræð­is­stjórn­inni í Venes­ú­ela.

Hvar er friðarverðlaunahafinn?
Blaða­manna­fundi aflýst Lög­reglu­menn horfa á mann vaf­inn inn í fána Venes­ú­ela ganga inn á Grand Hótel í Ósló í dag, deg­inum fyrir afhend­ingu frið­ar­verð­launa Nóbels sem fram fer í borg­inni. Frið­ar­verð­launa­hafi Nóbels 2025, stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­inn Maria Corina Machado frá Venes­ú­ela, mun taka við Nóbels­verð­launum sínum við hátíð­lega athöfn í Ósló þann 10. des­em­ber. Sá dagur er dán­araf­mæli vís­inda­manns­ins Alfreds Nóbels, sem lést árið 1896, en hann stofn­aði til verð­laun­anna í erfða­skrá sinni. Mynd: AFP

Full­trúar Nóbels­nefnd­ar­innar í Ósló aflýstu í dag blaða­manna­fundi með frið­ar­verð­launa­haf­anum Maríu Corinu Machado, þar sem óljóst var hvar stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­inn frá Venes­ú­ela væri nið­ur­komin og hvort hún myndi taka við verð­launum sínum í eigin per­sónu.

Machado hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels þann 10. októ­ber fyrir bar­áttu sína fyrir lýð­ræði í Venes­ú­ela, þar sem hún hefur skorað á harð­stjórn Nicolas Maduro, sem hefur verið for­seti síðan 2013.

Blaða­manna­fund­inum með hinni 58 ára gömlu Machado, sem fór í felur í heima­landi sínu í ágúst 2024, var upp­haf­lega seinkað en að lokum aflýst, en hann átti að hefj­ast klukkan 12 að íslenskum tíma.

„María Corina Machado sagði sjálf hversu erfitt það væri að koma til Noregs. Við vonum að hún verði við­stödd afhend­ingu Nóbels­verð­laun­anna“ á mið­viku­dag, sagði Erik Aasheim, tals­maður stofn­un­ar­innar, við AFP.

Eftir vanga­veltur um hvar hún væri nið­ur­komin und­an­farna daga biðu frétta­menn spenntir eftir því að hún kæmi fram opin­ber­lega í fyrsta sinn í 11 mán­uði.

Machado sást síð­ast opin­ber­lega á mót­mælum í Caracas þann 9. jan­úar, þar sem mót­mælt var emb­ætt­is­töku Maduro fyrir þriðja kjör­tíma­bil sitt.

Machado hefur sakað Maduro um að hafa stolið kosn­ing­unum í júlí 2024, þar sem henni var bannað að bjóða sig fram, en sú full­yrð­ing er studd af stórum hluta alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Verð­launa­haf­innMachado er stuðn­ings­kona Donalds Trump og til­eink­aði honum frið­ar­verð­laun Nóbels.

Telst hafa „strokið“

Rík­is­sak­sókn­ari Venes­ú­ela, Tarek William Saab, sagði í síð­asta mán­uði að stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­inn yrði talin hafa „strokið“ ef hún ferð­að­ist til Noregs til að taka við verð­laun­unum.

„Með því að vera utan Venes­ú­ela og með fjöl­margar saka­mála­rann­sóknir í gangi er hún talin hafa strokið,“ sagði Saab við AFP og bætti við að hún væri sökuð um „sam­særi, hvatn­ingu til hat­urs og hryðju­verk“.

Inn­an­rík­is­ráð­herra Venes­ú­ela, Diosdado Cabello, sagði í gær að hann vissi ekki hvort hún myndi ferð­ast til Óslóar.

Ferð til Óslóar myndi vekja upp erf­iðar spurn­ingar um mögu­lega end­ur­komu hennar til Venes­ú­ela eða getu hennar til að leiða stjórn­ar­and­stöð­una í Venes­ú­ela úr útlegð.

Michael Shifter, dós­ent við Georgetown-háskóla, sagði að „undir öllum kring­um­stæðum – hvort sem Machado getur snúið aftur til Venes­ú­ela eða ekki – verður mjög erfitt að við­halda skrið­þunga hreyf­ing­ar­innar sem hún veitti inn­blástur án þess að nokkur árangur náist í átt að póli­tískum breyt­ingum“.

„Vissu­lega verður erfitt fyrir Machado að leiða stjórn­ar­and­stöð­una í útlegð. En það verður heldur ekki auð­velt fyrir hana að gera það, jafn­vel með aðsetur í land­inu (þegar) flestir Venes­ú­ela­búar búa við skelfi­legar efna­hags­legar og mann­úð­ar­legar aðstæður og aukna kúgun af hálfu Maduro-stjórn­ar­innar,“ sagði hann við AFP.

En fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóri hennar, Magalli Meda, sagði í dag að það væri „eng­inn mögu­leiki á því að María Corina snúi ekki aftur og verði áfram í útlegð“.

Nóbels­verð­launa­af­hend­ingin fer fram á mið­viku­dag klukkan 12 að íslenskum tíma á morgun í Ráðhúsi Óslóar.

Nokkrir fjöl­skyldu­með­limir Machado, þar á meðal móðir hennar, þrjár systur og þrjú börn, voru þegar komin til Óslóar vegna við­burð­ar­ins.

En eng­inn þeirra hefur gefið upp hvar Machado er nið­ur­komin og sumir segj­ast ekki vita hvar hún er.

Hallar sér að Trump

Nokkrir leið­togar frá Rómönsku Ameríku, þar á meðal for­seti Argent­ínu, Javier Milei, og Edmundo Gonzalez Urrutia, sem bauð sig fram gegn Maduro, eru einnig komnir eða er von á til athafn­ar­innar.

Jose Raul Mulino, for­seti Panama, sást í Ósló á mánu­dag og sagð­ist vera kom­inn til að „óska hetju lýð­ræð­is­ins og hrjáðri þjóð Venes­ú­ela til ham­ingju“ og lýsti yfir von um „end­ur­komu lýð­ræðis í Venes­ú­ela eins fljótt og auðið er“.

Mikill lög­reglu­við­bún­aður hefur staðið vörð síðan í gær fyrir utan Grand Hótel í mið­borg Óslóar, þar sem frið­ar­verð­launa­hafar Nóbels dvelja jafnan, að sögn frétta­manna AFP.

Þótt Machado hafi verið hyllt af mörgum fyrir bar­áttu sína fyrir lýð­ræði í Venes­ú­ela, hefur hún einnig verið gagn­rýnd af öðrum fyrir að vera í banda­lagi með Donald Trump, sem hún til­eink­aði Nóbels­verð­launin sín.

Athöfnin í Ósló fer fram á sama tíma og mik­ill hern­að­ar­upp­gangur Banda­ríkj­anna hefur verið í Karí­ba­hafi und­an­farnar vikur og mann­skæðar árásir á það sem stjórn­völd í Washington segja vera smygl­bátar með eit­ur­lyf.

Maduro heldur því fram að raun­veru­legt mark­mið aðgerða Banda­ríkj­anna – sem Machado hefur sagt að séu rétt­læt­an­legar – sé að steypa rík­is­stjórn­inni af stóli og ná yfir­ráðum yfir olíu­lindum Venes­ú­ela.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár