Skilningsrík sýn sonar á móðurina Ástu

Skiln­ingur höf­undar gagn­vart erf­ið­leikum Ástu er áþreif­an­legur, segir gagn­rýn­andi um bók Kolbeins Þor­steins­sonar: Mamma og ég.

Skilningsrík sýn sonar á móðurina Ástu
Kolbeinn Þor­steins­son Mynd: Golli
Bók

Mamma og ég

Myndir og minningar
Höfundur Kolbeinn Þorsteinsson
Góður punktur
208 blaðsíður
Niðurstaða:

Mamma og ég er langþráður biti úr púsluspilinu sem líf Ástu Sigurðardóttur er fyrir aðdáendum hennar. Bréfin og ljósmyndirnar bæta miklu við frásögnina. Nístandi sárar minningar fá sitt pláss en skilningur höfundar gagnvart erfiðleikum Ástu er áþreifanlegur.

Gefðu umsögn

Áhugi íslensks almenn­ings á lífi og listum Ástu Sig­urð­ar­dóttur kvikn­aði um leið og hún steig fyrst fram á sjón­ar­sviðið og virð­ist ekk­ert hafa dvínað eftir því sem árin líða. Eina bók hennar, smá­sagna­safnið Sunnu­dags­kvöld til mánu­dags­morg­uns, frá árinu 1961, vakti verð­skuld­aða athygli á sínum tíma og var efni hennar end­ur­út­gefið ásamt ljóðum í bók­inni Sögur og ljóð sem kom út árið 1985. Sú hefur verið end­ur­prentuð í tvígang, síð­ast með leik­húskápu þar sem leik­konan Birgitta Birg­is­dóttir prýðir for­síð­una í hlut­verki Ástu. Leik­ritið naut gríð­ar­legra vin­sælda þegar það var sett upp árið 2020 en það byggði á ævi Ástu, sem Friðrika Ben­ón­ýs­dóttir hafði skráð á 10. ára­tugnum. Sú ævi­saga, Minn hlátur er sorg, var end­ur­út­gefin fyrir nokkrum árum og hefur notið mik­illa vin­sælda.

Tragísk Ásta

Þau okkar sem hafa heill­ast af Ástu fáum hrein­lega ekki nóg. Hún hefur þegar öðl­ast sess sem goð­sögn í íslensku menn­ing­ar­lífi vegna óhefð­bund­ins frjáls­lyndis, gíf­ur­legra list­rænna …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þessi bók er einstök frá mínu sjónarmiði.
    Takk fyrir Kolbeinn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár