Sveitarstjórnarfulltrúum fækkar

Sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum í Reykja­vík, Mos­fellsbæ, Vest­manna­eyjum, Garðabæ og Árborg hefur fjölgað um 20 frá kosn­ing­unum 2010. Almennt hefur full­trúum fækkað eftir sam­ein­ingar 30 sveit­ar­fé­laga á tíma­bil­inu.

Sveitarstjórnarfulltrúum fækkar
Borg­ar­stjórn Borg­ar­full­trúum fjölg­aði úr 15 í 23 árið 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Fimm sveit­ar­fé­lög hafa fjölgað sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum frá árinu 2011 en sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum á land­inu öllu hefur hins vegar fækkað á sama tíma.

Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Bryn­dísar Har­alds­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, á Alþingi. Óskaði hún eftir upp­lýs­ingum um þróun fjölda sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa og launa­kostnað þeirra á árunum 2011 til 2024.

Sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum í Garðabæ fjölg­aði úr 7 í 11 árið 2014, Mos­fells­bær fjölg­aði úr 7 í 9 árið 2014 og úr 9 í 11 árið 2022, Reykja­vík­ur­borg fór úr 15 í 23 árið 2018, Sveit­ar­fé­lagið Árborg úr 9 í 11 árið 2022 og Vest­manna­eyja­bær úr 7 í 9 árið 2022.

Í svar­inu kemur fram að ráðu­neyt­inu sé ekki falið með lögum að fylgj­ast með launa­kostn­aði kjör­inna sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa með almennum hætti og því liggi þær upp­lýs­ingar ekki fyrir.

Ráðherra hygg­ist hins vegar leggja fram frum­varp um breyt­ingar á sveit­ar­stjórn­ar­lögum á næst­unni þar sem lagt …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár