Flokkur fólksins tapaði 39 milljónum í fyrra

Óvæntar Alþing­is­kosn­ingar kunna að útskýra tap­rekstur Flokks fólks­ins í fyrra eftir hagnað árið áður. Flokk­ur­inn keypti aug­lýs­ingar fyrir 55,5 millj­ónir í aðdrag­anda kosn­inga.

Flokkur fólksins tapaði 39 milljónum í fyrra
Formaður Flokks fólks­ins Flokkur Ingu Sæland tap­aði um það bil jafn miklu í fyrra og hann hagn­að­ist árið 2023. Mynd: Víkingur

Flokkur fólks­ins tap­aði 39,4 millj­ónum króna árið 2024 sam­an­borið við 38,9 millj­ónir króna árið 2023.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi flokks­ins sem stað­festur hefur verið af Rík­is­end­ur­skoðun.

Stærsti kostn­að­ar­liður flokks­ins í fyrra voru Alþing­is­kosn­ingar sem boðað var til óvænt og á undan áætlun. Flokk­ur­inn eyddi 70 millj­ónum króna í tengslum við kosn­ing­arnar, þar af 55,5 millj­ónum í aug­lýs­ingar og kynn­ingar. Funda­kostn­aður nam tæpum 3,5 millj­ónum króna og ferða­kostn­aður 2 millj­ónum.

Kostn­aður við aðal­skrif­stofu flokks­ins nam 46 millj­ónum króna, rúm­lega helm­ingur í laun og launa­tengd gjöld. Þá greiddi flokk­ur­inn 9 millj­ónir króna í húsa­leigu í fyrra.

Framlög rík­is­ins til flokks­ins námu 65 millj­ónum króna í fyrra, það sama og árið áður. Framlög frá Alþingi námu rúmum 12 millj­ónum og fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum tæpum 1,4 millj­ónum króna, þar af rúm 1,1 milljón frá Reykja­vík­ur­borg og rúm 260 þús­und frá Akur­eyr­ar­kaup­stað. Félags­gjöld námu 417 þús­und krónum.

Eigið fé flokks­ins nam tæpum 49 …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár