Seldu Happy Hydrate fyrir 300 milljónir

Fyr­ir­tæk­ið Happy Hydra­te var rek­ið með tapi þrátt fyr­ir 303 millj­óna króna vöru­sölu á síð­asta ári. Fé­lag­ið sat á vöru­birgð­um að and­virði 55 millj­óna um ára­mót. Um­svif þess hafa sætt gagn­rýni upp á síðkast­ið eft­ir að hafa sett á mark­að steinefna­drykk fyr­ir börn allt nið­ur í fjög­urra ára.

Seldu Happy Hydrate fyrir 300 milljónir
Vinsælt Happy Hydrate hefur notið vinsælda meðal íþróttafólks og annarra. Mynd: Golli

Íslendingar keyptu Happy Hydrate vörur fyrir nærri 303 milljónir króna á síðasta ári. Það kostaði hins vegar innan við 91 milljón að framleiða þessar vörur. Þetta kemur fram í ársreikningi Happy Hydrate fyrir árið 2024. 

Rekstrarhagnaður upp á 22,5 milljónir varð hjá Happy Hydrate en afskriftir upp á milljón og fjármagnskostnaður og neikvæður gengismunur upp á 22 milljónir snéri þeim hagnaði í tap.  Fyrirtækið var því rekið með nærri 900 þúsund króna tapi þrátt fyrir mikla vörusölu. 

Félagið skráði vörubirgðir upp á tæplega 55 milljónir króna um síðustu áramót og viðskiptakröfur upp á 17 milljónir. Það auk einnar bifreiðar þýðir að bókfærðar eignir félagsins voru 73,9 milljónir í árslok. 

Sækja á nýjan markhóp

Happy Hydrate framleiðir fæðubótarefni sem inniheldur ýmist steinefni, kreatín eða koffín. Efninu er blandað saman við vatn. Nýverið setti fyrirtækið á markað vöru sem ætluð er fyrir fjögurra ára börn og eldri. „Þegar börn svitna, æfa, ferðast …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
2
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.
„Fólk er hrætt”
4
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
5
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
6
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár