Traustið rjátlast af öllum ráðherrunum öðrum en Daða

Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem nýtur meira trausts nú en í jan­úar. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hrynur í trausti.

Traustið rjátlast af öllum ráðherrunum öðrum en Daða
Daði Már Krist­ó­fers­son Sá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem þjóðin hefur treyst best frá efna­hags­hruni. Mynd: Golli

Fjár­mála­ráð­herra nýtur meira trausts nú en nokkurn tím­ann í mæl­ingum mark­aðs­rann­sókna­fyr­ir­tæk­is­ins Maskínu. Ráð­herr­ann, Daði Már Krist­ó­fers­son, utan­þings­ráð­herra úr Viðreisn, stekkur upp í trausti um 21 pró­sentu­stig frá jan­úar til októ­ber á þessu ári, sam­kvæmt nýbirtri könnun, og bera nú 46% mikið traust til hans, en 27% van­treysta honum.

Allir aðrir ráð­herrar falla í traust­mæl­ing­unni. Mest fellur Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra. Hann hrapar í trausti um 32 pró­sentu­stig og bera nú aðeins 16% mikið traust til hans, minna en til nokk­urs ann­ars ráð­herra. Á sama tíma segj­ast 27 pró­sentu­stigum fleiri bera lítið traust til inn­við­a­ráð­herr­ans en í jan­úar, sem leiðir hann í van­traust hjá 41% þjóð­ar­innar.

Traust til ráð­herraAllir falla aðrir en Daði Már Krist­ó­fers­son í mæl­ingu á trausti.

Mest vantraust til Flokks fólksins

Lands­menn bera afger­andi minnst traust til ráð­herra Flokks fólks­ins. Af þeim nýtur mennta­mála­ráð­herr­ann Guð­mundur Ingi Krist­jáns­son trausts 17% lands­manna en 55% van­treysta honum. Van­traust á mennta­mála­ráð­herr­anum eykst um 23 pró­sentu­stig, en í fyrri mæl­ingu í jan­úar var Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir í ráð­herra­stólnum, áður en hún sagði af sér eftir umfjöllun Rík­is­út­varps­ins um ást­ar­sam­band hennar við pilt, sem varð barns­faðir hennar fyrir 35 árum.

Litlu minna van­traust hefur Inga Sæland, félags og hús­næð­is­mála­ráð­herra, eða 52%.

Forsætisráðherra með mikið traust

Sögulega séð er traust til ráð­herra mikið. Þannig eru fleiri sem treysta for­sæt­is­ráð­herra en van­treysta. Um 60% treysta Kristrúnu Frosta­dóttur, en 24% van­treysta henni, sem er hækkun úr 15% í jan­úar. Skýr skil eru milli for­sæstis­ráð­herra­tíðar frá árinu 2008. Þannig mæld­ist Geir Haarde mest með van­traust 64% lands­manna, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir fór mest í 65% van­traust og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son í 82%. Bjarni Bene­dikts­son fór sömu­leiðis í 64% van­traust og var alla sína tíð með langt um minna traust en van­traust. 

Tveir for­sæt­is­ráð­herrar skera sig úr með afger­andi meira traust en van­traust, Kristrún Frosta­dóttir og  Katrín Jak­obs­dóttir, en sú síð­ar­nefnda end­aði í meira van­trausti en trausti undir lok sinnar tíðar.

Kristrún hefur mest traust þeirra sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en á Aust­ur­landi mælist hún með minnst traust, þar sem 44% van­treysta henni. Af ald­urs­flokkum er það ungt fólk, á aldr­inum 18 til 29 ára, sem treysta henni minnst. Þriðj­ungur fólks á þeim aldri van­treysta henni.

Engum heilbrigðisráðherra treyst meira

Alma Möller er sá heil­brigð­is­ráð­herra sem þjóðin treystir best frá því mæl­ingar Maskínu hófust. Alls treysta 53% lands­manna þessum fyrr­ver­andi land­lækni, en 25% van­treysta henni, sem er hækkun um fimm pró­sentu­stig frá jan­úar. 

Rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur hefur sett á odd­inn áætlun um að ná niður vaxta­kostn­aði rík­is­ins með aðhalds­kröfu í rík­is­út­gjöldum, sem hefur mætt and­stöðu verka­lýðs­fé­laga. Blikur eru hins vegar á lofti í efna­hags­málum vegna tolla­mála, minnk­andi útflutn­ings til Banda­ríkj­anna, þrá­látrar verð­bólgu,  skerð­ingar í starf­semi Norð­ur­áls og gjald­þrots flug­fé­lags­ins Play, svo eitt­hvað sé nefnt.

Daði Már Krist­ó­fers­son er með dokt­ors­gráðu í hag­fræði og er eini hag­fræði­mennt­aði fjár­mála­ráð­herr­ann á öld­inni, ef frá er tal­inn Geir H. Haarde, sem hafði masters­gráðu í hag­fræði, en Geir vék fyrir Árna Mathiesen 2005, sem var mennt­aður dýra­læknir og reynd­ist njóta trausts 5,5% lands­manna í mæl­ingu Maskínu í des­em­ber 2008.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár