Mamdani sigraði í New York

Sós­í­alist­inn Zhoran Mamdani er nýr borg­ar­stjóri New York-borgar. Enginn fram­bjóð­andi hefur fengið jafn mörg atkvæði og hann síðan í kosn­ing­unum 1969.

Mamdani sigraði í New York
Sig­ur­veg­ari Zohran Mamdani, fagn­aði sigrinum á kosn­inga­vöku í Brooklyn. Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Zohran Mamdani var í nótt kjör­inn nýr borg­ar­stjóri í New York. Hann sigr­aði með 50,4 pró­sent atkvæða en meira en milljón borg­ar­búa greiddu honum atkvæði. Enginn borg­ar­stjóri hefur fengið jafn mörg atkvæði síðan árið 1969. Óvenju góð kjör­sókn var í kosn­ing­unum í ár en tvö­falt fleiri greiddu atkvæði nú en síð­ast. 

„Ég er ungur, þrátt fyrir allar mínar til­raunir til að eld­ast,“ sagði Mamdani í sig­ur­ræðu sinni fyrir framan fullan sal stuðn­ings­manna sinna og upp­skar hlátur. „Ég er múslimi. Ég er lýð­ræð­is­sinn­aður sós­í­alisti. Og það sem verst er af öllu: ég neita að biðj­ast afsök­unar á neinu af þessu.“

Sigur Mamdani var afger­andi. Andrew Cuomo, helsti and­stæð­ingur Mamdani, hlaut 41,6 pró­sent atkvæða. Hann hafði áður tapað fyrir Mamdani í for­vali Demókra­ta­flokks­ins en bauð sig fram sem óháður fram­bjóð­andi, utan flokka. Repúblikan­inn, Curtis Sliwa, fékk 7,1 pró­sent atkvæða.

Mamdani mætti harðri and­stöðu innan eigin flokks og þótti ólík­legur sig­ur­veg­ari þegar hann bauð sig fyrst fram. Hann er yfir­lýstur sós­í­alisti og var það dregið fram í aug­lýs­ingum sem fjár­magn­aðar voru af millj­arða­mær­ingum á borð við Bill Ackman og fyrr­ver­andi borg­ar­stjór­ans Michael Bloombergs. 

Samkvæmt New York Times safn­aði stuðn­ings­fólk Cuomo meira en 40 millj­ónum doll­ara, á meðan stuðn­ings­menn Mamdani söfn­uðu um 10 millj­ónum til að verja til kosn­inga­bar­átt­unnar. Samkvæmt gögnum kosn­inga­stjórn­ari eyddu sjálf­stæðu kosn­inga­sam­tökin Fix the City - svo­kallað super-pac - rúm­lega 29 millj­ónum í að efla Cuomo og ráð­ast á and­stæð­inga hans. Það dugði þó ekki til.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár