Útgefandi Taylor Swift og The Weeknd semur um tónlistarsköpun við gervigreindarfyrirtæki

Uni­ver­sal Music Group hefur gert fyrsta leyf­is­samn­ing­inn um tón­list búna til með gervi­greind við sprota­fyr­ir­tækið Udio. Ný áskrift­ar­þjón­usta verður kynnt árið 2026 og byggir á tón­list með heim­il­uðum rétt­indum, sem markar tíma­mót í tón­list­ar­iðn­að­inum.

Útgefandi Taylor Swift og The Weeknd semur um tónlistarsköpun við gervigreindarfyrirtæki
Ósvarað Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað um samn­ing­inn, til að mynda hvort tón­list­ar­fólk á mála hjá Uni­ver­sal Music fái eitt­hvað um það að segja hvort tón­list þeirra sé miðlað til gervi­greind­ar­fyr­ir­tæk­is­ins.

Samn­ingur milli Uni­ver­sal Music Group og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Udio, sem sér­hæfir sig í tón­list­ar­sköpun með gervi­greind, markar nýjan kafla í sögu tón­list­ar­iðn­að­ar­ins sem hefur orðið fyrir áhrifum af til­komu gervi­greindar.

„Nýja þjón­ustan, sem verður sett á lagg­irnar árið 2026, verður knúin nýrri háþró­aðri sköp­un­ar­gervi­greind sem þjálfuð verður á heim­il­aðri og leyfðri tón­list,“ sögðu fyr­ir­tækin tvö í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu á fimmtu­dag.

Verk­efnið, sem hefur enn ekki fengið nafn, verður „ný áskrift­ar­þjón­usta“ sem gerir not­endum kleift að „aðlaga, streyma og deila tón­list á ábyrgan hátt á Udio-veit­unni“, að því er fram kom í yfir­lýs­ing­unni.

Ekki var útskýrt nánar hvernig nýja þjón­ustan mun virka.

Ýmsum aug­ljósum spurn­ingum er því enn ósvarað, svo sem hvort lista­menn þurfi að sam­þykkja að tón­list þeirra verði notuð, hvernig þeim verði greitt fyrir notkun og hvernig tón­list sem gervi­greindin býr til verður dreift.

Samn­ing­ur­inn á fimmtu­dag er sá fyrsti sinnar teg­undar í tón­list­ar­iðn­að­inum. Þar veitir stór­fyr­ir­tækið UMG – …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár