Hætta sem fólk þarf að hafa í huga

Óvenju­mikil snjó­koma á höf­uð­borg­ar­svæð­inu miðað við árs­tíma hefur haft í för með sér snjó­hengjur á hús­þökum og snjó­flóða­hættu til fjalla. Hengj­urnar geta skapað hættu, einkum þegar hlýna fer.

Hætta sem fólk þarf að hafa í huga

Snjó­þung­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu daga hefur senni­lega farið fram hjá fæstum, en hann hefur haft slæma færð og víð­tækar umferð­ar­tafir í för með sér.

Snjó­dýpt­ar­met fyrir októ­ber­mánuð var slegið tvo daga í röð á veð­ur­mæl­ing­areit Veð­ur­stof­unnar í vik­unni. Á þriðju­dag mæld­ist snjó­dýptin 27 sentí­metrar en á mið­viku­dag­inn 40 sentí­metrar. Það er mesta snjó­dýpt sem mælst hefur í höf­uð­borg­inni í októ­ber frá upp­hafi mæl­inga en fyrra met var 15 sentí­metrar, frá því 22. októ­ber 1921 – meira en helm­ingi minna en nýja metið. 

Þyngri snjóhengjur þegar rignir

Á næst­unni mun hlýna og er búist við asa­hláku þegar rign­ing og hlý­indi ganga yfir landið í dag og um helg­ina. Þá gera veð­ur­fræð­ingar ráð fyrir tals­verðri hálku vegna þessa.

Snjó­þung­inn hefur valdið því að stórar snjó­hengjur og grýlu­kerti hafa safn­ast á þökum húsa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Með hækk­andi hita­stigi geta hengj­urnar farið að detta í auknum mæli með til­fallandi slysa­hættu.

Hulda Rós Helga­dóttir, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár