Hjólreiðamaður klemmdur af bifreið

Myndband gengur um sam­fé­lags­miðla af öku­manni bif­reiðar sem klemmir hjól­reiða­mann upp við snjó­ruðn­ing, áður en hann bregst við.

Hjólreiðamaður klemmdur af bifreið
Atvikið í dag Veg­far­andi náði mynd­bandi af hátta­lagi bíl­stjóra og hjól­reiða­manns. Mynd: Skjáskot / Facebook

Deildar mein­ingar hafa verið í við­brögðum fólks á sam­fé­lags­miðlum í dag við mynd­bandi af hjól­reiða­manni sem ræðst með höggum á bif­reið, eftir að öku­mað­ur­inn hafði, að því er virð­ist, með­vitað keyrt hjól­reiða­mann­inn inn í snjó­ruðn­ing.

Mynd­bandið hefur gengið um sam­fé­lags­miðla í dag. Svo virð­ist sem hjól­reiða­mað­ur­inn hafi átt sér þann eina kost að hjóla eftir göt­unni milli snjó­ruðn­inga við hring­torg sem liggur að Spöng­inni í Graf­ar­vogi, þar sem snjó er rutt af götum upp á gang­stéttir. 

Maðurinn hjólaði við hlið tvinn­bif­reiðar af teg­und­inni Toyota Hybrid, sem þrengdi að honum í akstri sínum að hring­torg­inu. Svo virð­ist sem öku­mað­ur­inn hafi reiðst hjól­reiða­mann­inum og ákveðið að keyra hann út í kant. Hjól­reiða­mað­ur­inn reidd­ist á móti og barði á bif­reið­inni.

Mynd­bandiðHefur verið í dreif­ingu á Facebook í dag við mis­jöfn við­brögð.

Í umræðu í Facebook-hópnum „Fávitar í umferð­inni“ eru bæði hjól­reiða­mað­ur­inn og öku­maður bif­reið­ar­innar gagn­rýndir, en af mynd­band­inu virð­ist ljóst að öku­maður bif­reið­ar­innar hafi lagt hjól­reiða­mann­inn í hættu með því að keyra utan í hann. Flestir gagn­rýna sér­stak­lega bíl­stjór­ann og vísað er í reglur sem kveða á um að bif­reið skal ekið minnst einum og hálfum metra frá hlið reið­hjóls á akvegum:

„Maður á nokkura tonna tæki reynir að keyra á ein­stak­ling sem var greini­lega á undan honum í umferð­inni,“ skrifar einn þeirra. „Hér virð­ist vís­vit­andi ekið á hjólandi mann,“ skrifar annar og merkir Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Ökumenn bif­reiða eiga að vera að lág­marki 1,5 m frá hjól­reiða­manni þegar tekið er framúr. Þessi bíl­stjóri er eitt­hvað að mis­skilja umferð­ar­regl­urnar,“ segir þriðji. Þá óska fleiri eftir að lög­reglan athugi málið.

Margir gagn­rýna hins vegar hjól­reiða­mann­inn. „Þessi á hjól­inu ekki alveg í jafn­vægi.“ segir einn þeirra. „Hví í and­skot­anum er mað­ur­inn að hjóla í þess­ari færð og halda öðrum í gísl­ingu? Þetta er gata fyrir bíla,“ skrifar annar.

Sumir leggja áherslu á sam­kennd og aðstoð. „Datt engum í hug að aðstoða mann­inn?“ spyr ein konan. „Það er ekki enn búið ryðja göngu­stíga, skil alveg að hjól­reiða­mað­ur­inn var á göt­unni,“ skrifar annar.

Annað fólk sem tekur þátt í umræð­unni lýsir undrun sinni. „Hvað er að frétta, hjól­reiða­menn eru líka veg­far­endur. Það á ekki að keyra þá niður, galið rugl,“ skrifar maður nokkur.

Loks bregst einn þátt­tak­and­inn í umræð­unni við með því að ávarpa ein­fald­lega sjón­varps­mann­inn Gísla Martein Bald­urs­son, sem er fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi og þótti gæta hags­muna hjól­reiða­fólks í aðkomu sinni að borg­ar­málum.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár